Innlent

And­lát í Breið­holti til rann­sóknar

Freyja Þórisdóttir skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Íslenskur karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt en í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír menn hafi verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Þá heyrum við í lögreglu í tengslum við fjölda mála sem voru skráð í kerfum þeirra í nótt en við ræddum við Hjördísi Sigurbjartsdóttur sem er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá embættinu. 

Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalista tókust á um umdeildar hagræðingaraðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg en stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í vikunni. Rætt var við þau á Sprengisandi.

Þá tökum við púlsinn á kjaradeilu kennara en við heyrum í formanni Kennarasambandsins sem segir afar mikilvægt að samkomulag hafi náðst í deilu kennara og sveitarfélaganna.

Skrifað var undir samkomulag í gærkvöldi, rétt áður en frestur rann út til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum sem hefðu þýtt að kjarasamningar yrðu mögulega lausir í mars.

Við snertum á stöðunni í Bandaríkjunum þar sem þingkosningar eru fram undan og heyrum frá Ísleifi Þórhallssyni, framkvæmdastjóra Senu og skipuleggjanda Iceland Airwaves. Hann segir von á milli sjö til átta þúsund tónleikagestum og að um helmingur þeirra komi frá öðrum löndum. Umfangið sé svipað og á síðustu árum og mikil ásókn sé í að spila á hátíðinni.

Allt þetta í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 1. nóvember 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×