Einnig er hugsað fyrir tengingu hverfisins við „áframhaldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flugvöllurinn víkur þaðan.“
Þetta kemur fram í frétt á vef borgarinnar. Landsvæðið sem um ræðir er við enda þeirrar flugbrautar sem hefur verið lokað. „Svæðið liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs en af öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar til norðurs og austurs. Við suðurenda byggðarinnar er síðan strandlengja Skerjafjarðar.
Rammaskipulaginu er ætlað að vera leiðarljós varðandi uppbyggingu þessa nýja hverfis á þróunarreit (Þ5) sem er skilgreindur í Aðalaskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í framhaldi af samþykkt skipulagsins verður hafist handa við deiliskipulag á einstökum reitum svæðisins en í kjölfar þess hefst uppbygging.
Rammaskipulagið gerir ráð fyrir fjölbreyttum húsagerðum og ríkulegum, grænum almenningsrýmum sem hönnuð verða út frá sólaráttum og skjóli. Hugað verður að félagslegri blöndun á svæðinu og hafa stúdentar og Bjarg, byggingarfélag verkalýðshreyfingarinnar þegar fengið vilyrði fyrir lóðum í hinni nýju byggð.

Góð aðstaða verður fyrir ýmis konar sportbáta og seglskútur á svæðinu og er tiltekið að byggja eigi upp góða aðstöðu fyrir siglingaíþróttina á austurhluta strandarinnar. Öll strandlengjan þarna er sólrík og hentar því vel til dvalar, útivistar, sjóbaða og siglinga.
Notast verður við blágrænar ofanvatnslausnir í byggingum á svæðinu og skulu 60% allra þaka verða græn en það hægir á rennsli ofanvatns. Skipulagður er grænn miðás sem liggur í átt að miðlægu torgi þar sem gert er ráð fyrir biðstöð almenningssamgangna. Í þessu græna belti verður net leikvalla og áfangastaða.
Hugsað er fyrir tengingu hverfisins við áframhaldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flugvöllurinn víkur þaðan.
Þá er gert ráð fyrir tengingu almenningssamgangna við Kársnes í Kópavogi með byggingu brúar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur,“ segir í fréttinni en nánar má lesa um málið á vef Reykjavíkurborgar.