Kólnar í vikunni Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júlí 2018 07:05 Hver hefði trúað því að það myndi rigna í vikunni? Vísir/eyþór
Þó ótrúlegt megi virðast gerir Veðurstofan áfram ráð fyrir vætu sunnan- og vestantil á landinu. Að sama skapi er talið að það verði gott veður um landið norðaustanvert - en þó aðeins fyrripart dags því að síðan muni blotna þar líka. Hitinn muni að sama skapi ná sér ágætlega á strik í dag, talið er að hann geti náð um 20 stigum á Héraði en annars staðar verður hann á bilinu 8 til 14 stig. Líkur séu hins vegar á að það kólni þegar kemur fram í vikuna, einkum fyrir norðan. Vætan verður þó fremur lítil í dag og framan af degi á morgun. Spár gera hins vegar ráð fyrir því að skil gangi yfir landið frá suðri til norðurs þegar líða tekur á morgundaginn. Önnur skil muni svo ganga yfir landið á miðvikudaginn. Þeim muni fylgja töluverð væta. Að öðru leyti er allt eins og það á að vera, búast má við einhverri rigningu út alla vikuna - en þó síst á norðausturhorninu.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum og víða dálítil væta, en úrkomulítið NV-til. Hiti 6 til 16 stig, hlýjast suðaustantil.Á miðvikudag:Austlæg og síðar norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast við SA-ströndina fyrripartinn. Skýjað og allvíða dálítil rigning eða skúrir og hiti 8 til 15 stig, en úrkomulítið og svalara á Vestfjörðum.Á fimmtudag:Norðvestlæg átt. Rigning á Norður- og Austurlandi, annars skýjað með köflum. Hiti 4 til 15 stig, mildast SA-lands.Á föstudag:Suðlæg eða breytileg átt og víða bjart á köflum. Hiti 7 til 15 stig, svalast á Vestfjörðum.Á laugardag og sunnudag:Útlit fyrir suðlæga átt með dálítilli vætu í flestum landshlutum, síst NA-til. Hiti 9 til 15 stig.
Veður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent „Frakkland má ekki vera fyrirmynd í þessum efnum“ Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira