Farþegaflugvél brotlenti eftir flugtak í Mexíkó Kjartan Kjartansson skrifar 31. júlí 2018 22:51 Slökkviliðsmenn á vettvangi þar sem flugvélin brotlenti. Vísir/EPA
Ríkisstjórinn í Durango-ríki í Mexíkó segir að enginn hafi farist þegar farþegaflugvél með 97 farþegum um borð brotlenti skömmu eftir flugtak í dag. Einhverjir eru þó sagðir hafa slasast í slysinu. Flugvélin var á vegum mexíkóska flugfélagsins Aeroméxico og var hún á leið frá flugvellinum í Guadelupe til Mexíkóborgar. Breska ríkisútvarpið BBC segir að vélin hafi brotlent um tíu kílómetrum frá flugvellinum. José Aispuro, ríkisstjóri Durango-ríkis, segir að vitni hafi greint frá því að „hvellur“ hafi heyrst áður en vélin hrapaði til jarðar klukkan fjögur síðdegis að staðartíma, klukkan níu í kvöld að íslenskum tíma. Hún er af gerðinni Embraer 190. Auk farþeganna var fjögurra manna áhöfn um borð í flugvélinni. Mexíkóskir fjölmiðlar hafa sagt frá því að sést hafi til farþega vélarinnar ganga um í nágrenni brotlendingarstaðarins í leit að hjálp. Allt tiltækt sjúkralið á svæðinu hefur verið kallað út vegna slyssins.
Mexíkó Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira