Pirraður nágranni veittist að lögreglumanni Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. ágúst 2018 06:34 Horft yfir nýtt hverfi sem rís þessa dagana við hlið Smáralindar. Vísir/Vilhelm
Æfur Kópavogsbúi réðst á lögreglumann í nótt. Maðurinn er sagður hafa kvartað undan hávaða sem barst frá íbúð einni í fjölbýlishúsi í Kópavogi skömmu eftir miðnætti. Þegar lögreglumenn mættu á svæðið á þó ekki að hafa heyrst neitt frá íbúðinni. Í skeyti lögreglunnar segir að maðurinn sem tilkynnti um hávaðann hafi hins vegar verið áminntur og hann beðinn um að „vera ekki með læti á þessum tíma,“ eins og það er orðað. Hann hafi hins vegar ekki látið sér segjast og er hann sagður hafa mætt aftur út á stigagang og óskað eftir því að leggja fram kvörtun vegna nágranna sinna. Lögreglumennirnir hafi hins vegar ekki viljað verða við þeirri bón. Þá er maðurinn sagður hafa snöggreiðst og ráðist að lögreglumanni með hnefahöggi. Maðurinn var yfirbugaður, handtekinn og fluttur í fangageymslu þar sem hann hefur mátt hírast í nótt. Þegar lögreglumenn fóru inn í íbúð mannsins eru þeir sagðir hafa rekið augun í eggvopn, skotvopn og eitthvað magn skotfæra - sem lögreglan lagði hald á.
Lögreglumál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira