Tekinn á rúmlega tvöföldum hámarkshraða Stefán Ó. Jónsson skrifar 7. ágúst 2018 06:48 Frá lögregluaðgerðum á Sæbraut, myndin er úr safni. Vísir/HAG
Ungur ökumaður var stöðvaður í nótt eftir að hafa ekið um Sæbraut á ógnarhraða. Fram kemur í skeyti lögreglunnar að ökumaðurinn, sem er um tvítugt, hafi verið mældur á næstum 150 km/klst hraða, en hámarkshraðinn á Sæbraut er aðeins 60 km/klst. Var ökumaðurinn ungi því á rúmlega tvöföldum hámarkshraða. Hann var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þá voru tveir ölvaðir menn til vandræða í nótt. Annar þeirra var handtekinn í Austurstræti eftir að hann hafði hótað vegfarendum. Þá er hann jafnframt grunaður um þjófnað - en hverju hann á að hafa stolið fylgir ekki sögunni. Hann var fluttur í fangaklefa þar sem hann hefur mátt verja nóttinni. Hinn drykkurúturinn var handtekinn við veitingahús í Hafnarfirði, þar sem hann hafði verið með „leiðindi og farinn að slá til gesta,“ eins og það er orðað í skeyti lögreglunnar. Ákveðið var því að handtaka manninn og flytja í fangaklefa en lögreglan segist hafa haft afskipti af honum áður. Einnig var tilkynnt um opna svalahurð í Grafarvogi á sjöunda tímanum í gærkvöldi. „Er lögregla kom á vettvang var búið að fara inn og róta í öllu og hella niður matvöru ofl,“ segir í skeyti lögreglunnar. Eigandi íbúðarinnar er sagður vera erlendis og mætti því faðir hans á vettvang - „og gerði ráðstafanir.“ Hvað í þeim fólst fylgir hins vegar ekki sögunni.
Lögreglumál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Sjá meira