Kínverjar sakaðir um að halda milljón Úíghúrum í leynilegum fangabúðum Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2018 12:10 Börn Úíghúra í Xinjiang-héraði þar sem kínversk stjórnvöld eru sökuð um að kúga minnihluta múslíma. Vísir/EPA
Sameinuðu þjóðirnar segjast hafa trúverðugar heimildir fyrir því að kínversk stjórnvöld haldi allt að milljón manna sem tilheyra Úíghúraþjóðarbrotinu í leynilegum fangabúðum. Í heildina hafi tvær milljónir Úíghúra og múslíma verið neyddar í innrætingarbúðir í Xinjiang-sjálfsstjórnarhéraðinu. Gay McDougall, fulltrúi í nefnd Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um útrýmingu kynþáttamismununar, segir margar trúverðugar frásagnir af því að fólki sé haldið í búðum af þessu tagi undir því yfirskyni að berjast gegn trúarofstæki og að viðhalda félagslegum stöðugleika. Komið væri fram við Úíghúra eins og „óvini ríkisins“ einungis á grundvelli kynþáttar og trúar þeirra. McDougall greindi frá þessu á tveggja daga ráðstefnu um ástand mannréttindamála í Kína. Kínversk stjórnvöld hafa sagt að alvarleg ógn stafi af herskáum íslamistum og aðskilnaðarsinnum í Xinjiang. Þeir ali á spennu á milli minnihluta Úíghúrfólks sem er múslímatrúar og meirihluta Hanfólks. Sendinefnd Kína á ráðstefnunni í Genf tjáði sig ekki um ummæli McDougall, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Sendinefnd Bandaríkjanna hjá SÞ lýsti áhyggjum af frásögnunum af meintum ofsóknum kínverskra stjórnvalda gegn minnihlutahópum í Xinjiang.
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira