Stal mannlausri flugvél og brotlenti Kjartan Kjartansson skrifar 11. ágúst 2018 08:36 Reykur stígur upp frá Ketron-eyju í Puget-sundi í nótt.. Ekki er ljóst hvort að maðurinn sem flaug vélinni hafi lifað brotlendinguna af. Vísir/AP
Starfsmaður flugfélags stal tómri farþegaflugvél og brotlenti henni á eyju nálægt Tacoma-flugvelli í Seattle í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Loka þurfti flugvellinum vegna atviksins. Ekki er ljóst hvort maðurinn lifði brotlendinguna af.Breska ríkisútvarpið BBC segir að tvær F15-orrustuþotur hafi elt flugvélina þangað til hún brotlenti á eyju í Puget-sundi. Maðurinn er sagður 29 ára gamall og frá svæðinu. Washington Post segir að maðurinn sé flugvirki og að hann hafi verið í sjálfsvígshugleiðingum. Lögreglustjórinn í Pierce-sýslu sagðist ekki telja að uppákoman tengdist hryðjuverkum. Svo virtist sem að maðurinn hafi stolið vélinni sér til gamans en að það hafi farið „hræðilega úrskeiðis“. Flugvélin var af gerðinni Bombardier Dash 8 á vegum Horizon Air-flugfélagsins. Myndbönd sem deilt var á samfélagsmiðlum sýndu vélina á háskalegu flugi í nágrenni flugvallarins. Á upptöku af samskiptum mannsins við flugturn er hann sagður hafa hljómað „áhyggjulaus og villtur“. Hann hafi meðal annars talað um að fara í útsýnisflug yfir Ólympusarfjöll í Washington-ríki og að fara í heila veltu áður en hann lenti og „segði þetta gott“.Some dude stole a plane from #Seatac (Allegedly), did a loop-the-loop, ALMOST crashed into #ChambersBay, then crossed in front of our party, chased by fighter jets and subsequently crashed. Weird times. pic.twitter.com/Ra4LcIhwfU— bmbdgty (@drbmbdgty) August 11, 2018
Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira