Þjálfari Íslandsmeistara KR farinn að þjálfa hjá Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2018 13:06 Finnur Freyr Stefánsson og Grímur Atlason, stjórnarformaður Vals. Mynd/Valur
Finnur Freyr Stefánsson gerði karlalið KR að Íslandsmeisturum undanfarin fimm ár en nú hefur verið ráðinn sem þjálfari á barna- og unglingasviði Vals og tekur hann við einum allra efnilegasta flokki Vals. Finnur Freyr kemur til með að þjálfa minnibolta átta og níu ára auk drengjaflokks Vals en honum til aðstoðar þar verður Þorgrímur Guðni Björnsson aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Valsmenn segja frá þessu á fésbókarsíðu sinni. Drengjaflokki Vals gekk vel á síðustu leiktíð en liðið tapaði naumlega fyrir Íslandsmeisturum Hauka í úrslitakeppninni í vor. 10. flokkurinn, sem skipar í dag yngra ár í drengjaflokki, vann Scania Cup í vor en það er óopinbert norðurlandamót félagsliða. Finnur Freyr tekur við af Ágúst Björgvinsson sem hefur þjálfað hópinn síðastliðin fimm ár. Ágúst mun halda áfram þjálfun meistaraflokks félagsins ásamt því að vera yfirþjálfari yngriflokka félagsins. Finnur Freyr á langan og farsælan feril sem þjálfari þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur þjálfað alla flokka hjá KR á þeim tíma sem hann var þar. Síðustu fimm tímabil þjálfaði Finnur Freyr meistaraflokk karla og vann Íslandsmeistaratitilinn öll árin auk þess að leiða lið KR til tveggja bikarmeistaratitla og fjögurra deildarmeistaratitla.
Dominos-deild karla Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti Fleiri fréttir Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Sjá meira