Haustspá Siggu Kling – Bogmaðurinn: Ert að fara inn í bjartsýniskast 7. september 2018 09:00
Elsku Bogmaðurinn minn, þú hefur svo sannarlega mikilvægt hlutverk í lífinu, átt eftir að hrista svo hressilega upp í mönnum og segja skoðun þína með sterkum róm. Ef þér finnst röddin þín vera lágróma þýðir það bara þú sért búinn að ganga í gegnum of mikil álag sem þú getur í raun og veru kannski ekki útskýrt. Það er í eðli þínu að passa upp á að allt sé í lagi allstaðar og það getur verið svo ótrúlega þreytandi að þú nærð ekki fókus eða einbeitingu á það sem þú vilt sjálfur. Þú ert á tímabili sem þú þarft að skoða hvort þér líki við aðstæðurnar sem þú ert í eða hvort þær séu að stoppa kraftinn þinn til fulls og þú þurfir að færa þig um set og breyta stefnu. Þú ert að fara inn í bjartsýniskast og það mun gefa þér óbilandi þor og gleði sem skilar sér margfalt til baka, ekki skipuleggja langt fram í tímann því þá hendir það þig að vera með hausinn í framtíðinni og þá nýturðu þín ekki í því sem er að gerast. Það þarf að vera mikil hreyfing á þér því það er enginn millivegur, þú átt það til að takast á loft og finnast allt dásamlegt eins svo pomparðu niður og ímyndar þér allt sé ömurlegt. Peningalega gengur allt upp, en þú þarft að hafa heiðarleika að leiðarljósi og standa við skuldbindingar þínar því ef þú gerir það ekki eða ert óheiðarlegur gæti það bókstaflega fellt þig á næstu mánuðum. Gakktu frá því sem þú skuldar öðrum eða finndu út leið til að semja, því allt annað kemur alltaf í bakið á þér seinna. Ef þig vantar hjálp þarftu bara að biðja um hana því bara í þeim einföldu hlutum liggur lausn á þínum vandamálum, þú ert með plánetu lukku og láns yfir þér sem er þér til halds og trausts svo ólíklegasta fólk öfundar þig. Ef þú ert á lausu og leitandi að ástinni þá þarftu að vera svolítið ákveðinn, vita hvað þú vilt og gefast ekki upp. Þetta tímabil færir þér óvænt ferðalag eða ferðalög og þá verður þú svo sannarlega í essinu þínu.Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt, Kjartan Kjartansson athafnamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira