Eftir miklu að slægjast í vösum asískra ferðamanna Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. september 2018 12:00 Kátir kínverskir ferðamenn við Buckingham-höll í Lundúnum. vísir/getty
Gríðarlega auðsöfnun á undanförnum árum hefur leitt till þess að flestir auðjöfrar heimsins koma nú frá ríkjum Austur-Asíu. Tíu milljón kínversk vegabréf verða gefin út árlega á komandi árum og því eftir miklu að slægjast fyrir ferðaþjónustufyrirtæki heimsins. Sem fyrr eru Bandaríkin þó heimkynni flestra ofurríkra í heiminum, en í úttekt Forbes má sjá að bandarískir milljarðamæringar, mælt í bandaríkjadölum, eru 585 talsins. Kína og Hong Kong koma þar á eftir með sína 373 milljarðamæringa. Sé hins vegar litið á Austur-Asíu sem eitt landsvæði snýst taflið við. Heildarfjöldi milljarðarmæringa í Kína, Hong Kong, Indlandi, Japan, Suður-Kóreu, Tælandi og Víetnam í fyrra var rétt rúmlega 600. Þar að auki má finna flesta þá sem eiga meira en milljón bandaríkjadali, umfram virði lögheimilis síns, í þessum ríkjum. Þó um sé að ræða mörg af fjölmennustu ríkjum heims, og hlutfallslegur fjöldi milljarðamæringa sé því ekki hár, er þessi þróun þó til marks um þann mikla auð sem safnast hefur upp í ríkjunum við vesturströnd Kyrrahafsins.Ma Huateng, einnig þekktur sem Pony Ma, er ríkasti Asíubúinn.Vísir/GettyTalsmaður greiningarfyrirtækisins Capgemini segir í samtali við breska ríkisútvarpið að auðsöfnunin hafi ekki síst verið drifin áfram af miklum hagvexti í Kína á undanförnum árum. Hann var að jafnaði á bilinu 8 til 11% á árunum 2008-2012, tímabili sem markaðist af niðursveiflu á mörkuðum í Vesturheimi. Kröftugur hagvöxtur á Indlandi, ásamt jöfum hækkunartakti í hinum þróaðri hagkerfum Singapúr, Hong Kong og Japans hafi að sama skapi leikið stórt hlutverk í auðsöfnuninni. Ríkasti maður Asíu er Ma Huateng en hann er í sautjánda sæti yfir ríkustu einstaklinga heims á Forbes-lista ársins. Hann er framkvæmdastjóri fjarskiptarisans Tencent Holdings sem rekur meðal annars weChat, gríðarvinsæla skilaboðaþjónustu í Kína. Hann er metinn á 45,3 milljarða bandaríkjadala, næstum 5000 milljarða íslenskra króna. Jack Ma, forstjóri smásölunnar Alibaba, er einnig á meðal 20 ríkustu einstaklinga heims. Alibaba er nú orðið eitt allra verðmætasta fyrirtæki heims en hlutabréfaverð í félaginu tvöfaldaðist á síðasta ári. Jack Ma er metinn á 39 milljarða bandaríkjadala.Kínverjar eru stærsti ferðamannahópur heimsins. Fimmta hver króna sem ferðamenn eyða í heiminum kemur úr vösum Kínverja.Vísir/gettyÞað er þó ekki aðeins ofurríkum sem hefur fjölgað í Austur-Asíu að á síðustu árum. Millistéttin í Kína hefur einnig stækkað hratt á undanförnum árum og talið er að hún telji nú rúmlega 400 milljón manns. Þessi þjóðfélagshópur hefur varið nýfengnu auð sínum í ferðalög og er nú svo komið að kínverska millistéttin myndar fjölmennsta ferðamannahóp heimsins. Alls ferðuðst 130 milljón Kínverjar til útlanda í fyrra, sem var sjö prósent aukning frá fyrra ári, og talið er að um 10 milljón ný vegabréf verði gefin út í Kína, á hverju ári, í náinni framtíð. Ferðamannastofnun Sameinuðu þjóðanna áætlar að Kínverjar beri jafnframt ábyrgð á fimmtungi heildarneyslu allra ferðamanna heimsins. Fjórðungur starfa sem verða til í heiminum næsta áratuginn verða í ferðaþjónustu. Greinendur telja að það verði ekki síst kínverska millistéttin sem muni með ferðalögum sínum ýta undir þá þróun. Ætla má að forráðamenn íslensku flugfélaganna séu fullmeðvitaðir um þessa framtíðarsýn. Bæði WOW Air og Icelandair hafa lagt allt kapp á að hefja beint flug til Asíu. Fyrsta Indlandsflug WOW er fyrirhugað í desember næstkomandi og vonast Icelandair til að hefja áætlunarflug til Indlands frá og með haustinu 2019.
Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Mest lesið Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira