Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Hagstofunnar um laun á Íslandi í fyrra.
Þar segir jafnframt að miðgildi heildarlauna hafi verið 618 þúsund krónur „og var því helmingur launamanna með laun undir þeirri upphæð og helmingur yfir. Munur meðaltals og miðgildis skýrist meðal annars af því að hæstu laun hækka meðaltalið en kjarasamningar tryggja ákveðin lágmarkskjör án þess að kveða á um hámarkskjör,“ segir á vef Hagstofunnar.
„Heildarlaun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 730 þúsund krónur á mánuði árið 2017 hjá fullvinnandi starfsmönnum. Heildarlaun ríkisstarfsmanna voru 774 þúsund krónur en 569 þúsund krónur hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Dreifing heildarlauna var ólík eftir launþegahópum, þannig voru 65% starfsmanna sveitarfélaga með heildarlaun undir 600 þúsundum króna á mánuði en það sama átti við um rúmlega 30% ríkisstarfsmanna og um 45% starfsmanna á almennum vinnumarkaði.“
Nákvæmari sundurliðun má nálgast á vef Hagstofunnar.
