Stefnt að 29 milljarða króna afgangi Atli Ísleifsson skrifar 11. september 2018 08:43 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið í morgun. Vísir/Vilhelm
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2019 gerir ráð fyrir afgangur á heildarafkomu ríkissjóðs verði eitt prósent af vergri landsframleiðslu árið 2019 eða um 29 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fjármálaráðuneytisins. Þar segir að heildargjöld ríkissjóðs aukist milli ára um sjö prósent að nafnvirði, eða um ríflega 55 milljarða króna. Á móti kemur að gert sé ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs aukist um tæplega 52 milljarða. Ljóst sé að þetta sé við efri mörk mögulegs útgjaldavaxtar og hyggjast stjórnvöld bregðast við þeim vexti með reglulegu endurmati á útgjöldum til þess að unnt sé að tryggja sem besta ráðstöfun fjármuna.Aukið fé til heilbrigðismála Samkvæmt frumvarpinu verða framlög til heilbrigðismála aukin á árinu 2019 þar sem þyngst vega framkvæmdir við nýjan Landspítala en áætlað er að verja 7,2 milljörðum króna til þeirra á næsta ári. Auk þess verða framlög aukin vegna byggingar og rekstrar hjúkrunarheimila. „Hækkun framlaga til heilbrigðismála milli 2018 og 2019 nemur 12,6 milljörðum króna að frátöldum launa- og verðlagshækkunum. Einnig er verulega er aukið við framlög til félags-, húsnæðis- og tryggingamála en þar nemur heildarhækkunin 13,3 ma.kr. að frátöldum launa- og verðlagshækkunum. Áfram er lögð áhersla á fjárfestingar í innviðum. Til viðbótar við uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut er gert ráð fyrir 5,5 milljarða króna aukningu til samgöngumála sem skýrist fyrst og fremst af sérstöku átaki í samgöngumálum á árunum 2019-2021 sem fjármagnað verður með tímabundnum umframarðgreiðslum fjármálafyrirtækja líkt og boðað var í gildandi fjármálaáætlun. Gert er ráð fyrir að framlög til samgöngu- og fjarskiptamála verði aukin um 9% á árinu 2019 en framlög til málaflokksins verða ríflega 43,6 ma.kr. Af öðrum stærri fjárfestingarverkefnum má nefna fyrstu framlög til kaupa á nýjum þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna, sem gert er ráð fyrir að verði afhentar árið 2022, auk uppbyggingar Húss íslenskunnar.Rúmir 25 milljarðar króna í stuðning vegna húsnæðis Á næsta ári er gert ráð fyrir að stuðningur vegna húsnæðis aukist um ríflega 900 miljónir króna. Þá verður stuðningurinn alls um 25,4 milljarðar króna en hann er veittur eftir nokkrum ólíkum leiðum, svo sem í formi húsnæðisbóta, stofnframlaga til byggingar almennra íbúða og vaxtabóta. Einnig er húsnæðisstuðningur veittur með skattastyrkjum vegna almenns séreignarsparnaðarúrræðis og stuðnings til fyrstu kaupa, auk undanþágu leigutekna frá skatti, afsláttar á stimpilgjöldum vegna fyrstu kaupa og endurgreiðslu á virðisaukaskatti til byggjenda vegna sölu og leigu íbúðarhúsnæðis og til fasteignaeigenda vegna viðhaldsvinnu. Hér má sjá upptöku af kynningu fjárlaganna en hún var í beinni útsendingu á Vísi.Minni álögur á launafólk Á næsta ári verður unnið að fyrstu áföngum í breytingum á samspili tekjuskatts- og bótakerfa, sem er eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar. Í febrúar lýsti ríkisstjórnin því yfir að í tengslum við endurskoðun kjarasamninga á almennum markaði yrði hafin endurskoðun á tekjuskattskerfinu með áherslu á lækkun skattbyrði og mögulegar breytingar á fyrirkomulagi persónuafsláttar og samspili við bótakerfi sem ætlað er að styðja við tekjulægri hópa. Því er samhliða frumvarpi til fjárlaga lagt til að gripið verði til aðgerða sem miða að því að liðka fyrir samningum á vinnumarkaði. Lagt er til að persónuafsláttur hækki um 1 prósentustig umfram lögbundna 12 mánaða hækkun vísitölu neysluverðs á árinu 2019. Jafnframt er gert ráð fyrir því að hækkun þrepamarka efra skattþreps verði miðuð við vísitölu neysluverðs, en tenging marka efra þrepsins við vísitölu launa skapar ákveðið misræmi þar sem persónuafslátturinn og þar með skattleysismörkin fylgja vísitölu neysluverðs. Við því er nú brugðist með því að festa mörk efra þrepsins við vísitölu verðlags. Við þetta verður jafnræði milli ólíkra tekjuhópa gagnvart skattkerfinu meira og skattgreiðslur almennings lækka um 1,7 ma.kr. Samhliða hækkun persónuafsláttar og tengingu þrepmarka efra skattþreps við vísitölu neysluverðs verða barnabætur hækkaðar verulega, eða sem svarar til 1,6 ma.kr. frá gildandi fjárlögum. Það felur í sér 16% hækkun milli áranna 2018 og 2019. Auk hækkunar fjárhæða og viðmiðunarmarka skerðingar barnabóta er í fjárlögum gert ráð fyrir nýju þrepi skerðingar á barnabótum sem er ætlað að tryggja að hækkunin skili sér fyrst og fremst til lágtekju- og lægri millitekjuhópa. Vaxtabætur hækka einnig, um sem nemur 13% frá áætlaðri útkomu 2018. Í tengslum við framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2019 er lagt til að tryggingagjald lækki í ársbyrjun 2019 um 0,25 prósentustig og aftur um 0,25 prósentustig í ársbyrjun 2020. Samanlagt þýðir þetta um 9,3% lækkun á gjaldinu. Er aðgerðinni ætlað að stuðla að jafnvægi á vinnumarkaði og því að launahækkanir á næsta ári leiði síður til verðbólgu.Góð staða efnahagsmála Þrátt fyrir að hægist á vexti er hann enn umtalsverður og talsvert meiri en flest þróuð hagkerfi í Evrópu geta vænst. Staða efnahagsmála telst góð á flesta mælikvarða eins og endurspeglast í mati lánshæfisfyrirtækjanna á ríkissjóði, en lánshæfiseinkunn Íslands hefur jafnt og þétt hækkað síðustu ár og er nú metin A/A-1 og A hjá S&P Global og Fitch, með stöðugum horfum en A3 með jákvæðum horfum hjá Moody‘s. Núverandi einkunnir grundvallast á háum þjóðartekjum, sterkum stofnunum, góðum lífskjörum og viðskiptaumhverfi.Markviss lækkun skulda Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað hratt síðustu ár. Heildarskuldir hafa lækkað um 658 milljarða króna á sex árum og hlutfall þeirra af landsframleiðslu lækkað úr 86%, þegar það var hæst árið 2011, í 31% í lok þessa árs. Frá miðju ári 2017 til miðs árs 2018 lækkuðu skuldir ríkissjóðs um 88 ma.kr. en það samsvarar því að skuldir hafi lækkað um 10 milljónir á klukkustund. Vegna þessara aðgerða munu skuldir ríkissjóðs fara undir viðmið fjármálareglna laga um opinber fjármál í fyrsta sinn árið 2019. Útlit er fyrir að hrein vaxtagjöld verði um 26 milljörðum lægri árið 2019 en árið 2011. Auk þess sem skuldir ríkissjóðs hafa verið lækkaðar hafa háar fjárhæðir verið greiddar inn á lífeyrisskuldbindingar, en þessar aðgerðir auka sjálfbærni ríkisfjármálanna til langs tíma litið og koma í veg fyrir að núlifandi kynslóðir taki út lífskjör á kostnað þeirra sem á eftir koma. Áformuð stofnun Þjóðarsjóðs með lagasetningu á þessu þingi, sem ætlað er að safna upp arði af orkuauðlindum, getur stutt við þessa stefnu um sjálfbærni opinberra fjármála,“ segir í fréttinni.
Fjárlagafrumvarp 2019 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Innlent Fleiri fréttir Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Sjá meira