Erlent

„Þeir hlógu ekki að mér, þeir hlógu með mér“

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Evan Vucci
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir það „falskar fréttir“ að þjóðarleiðtogar hafi hlegið að honum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Þess í stað hafi þeir hlegið með honum. Þegar Trump hélt því fram í gær að ríkisstjórn hans hefði náð meiri árangri en nánast allar aðrar ríkisstjórnir í sögu Bandaríkjanna hefðu náð, brast út hlátur í salnum.

„Svo satt,“ sagði hann í gær og hláturinn varð meiri. „Ég bjóst ekki við þessum viðbrögðum, en það er allt í lagi.“

Sjá einnig: Hlegið að grobbi Trump hjá Sameinuðu þjóðunum

„Þeir voru ekki að hlæja að mér,“ sagði Trump á blaðamannafundi í kvöld. „Þeir voru að hlæja með mér. Við vorum að skemmta okkur.“



Trump fór víða um á blaðamannafundinum og sagði meðal annars að ef hann hefði ekki verið kosinn væru Bandaríkin nú í stríði við Norður-Kóreu og að hann hefði neitað að hitta Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, en Bandaríkin og Kanada eiga í viðskiptadeilum.

„Við erum mjög óánægðir með samningaviðræðurnar og samningastíl Kanada. Okkur líkar ekki vel við fulltrúa þeirra,“ sagði Trump.

Talskona Trudeau segir þetta ekki rétt hjá Trump. Ekki hafi verið beðið um fund á milli hans og forsætisráðherrans.

Trump ræddi einnig um ásakanirnar gegn Brett Kavanaugh, sem hann hefur tilnefnt til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Þrjár konur hafa stigið fram og sakað um kynferðisbrot á árum áður. Trump sagði aftur að allar ásakanirnar væru „svikamylla“ sem runnin væri undan rifjum Demókrataflokksins.

Sjá einnig: Eins og í Twilight Zone segir Kavanaugh um ásakanir þriðju konunnar



Hann sagði ásakanirnar hafa áhrif á skoðun sína gagnvart Kavanaugh og vísaði til þess að hann sjálfur hefði orðið fórnarlamb „falskra ásakana“ og að margir vinir hans hefðu lent í því sömuleiðis.

„Fólk er að sækjast eftir frægð, peningum og hverju sem er. Þegar ég sé þetta lít ég á þetta öðrum augum en aðrir sem sitja heima og sjá þetta í sjónvarpinu. Þetta hefur margsinnis komið fyrir mig,“ sagði Trump. Hann bætti við að „fjórar eða fimm“ konur hefðu fengið mikla peninga fyrir að saka sig um kynferðisbrot.

Eins og AP fréttaveitan bendir á stigu minnst tólf konur fram í kosningabaráttunni 2016 og sökuðu Trump um kynferðisbrot. Þá var opinberað myndband frá árinu 2005 þar sem Trump stærði sig af því að geta kysst kvenur og gripið í kynfæri þeirra án samþykkis þeirra vegna þess að hann væri frægur.


Tengdar fréttir

Svarar Trump með frásögn af nauðgun, skömm og þöggun

Bandaríska sjónvarpskonan Padma Lakshmi greinir frá því hvers vegna hún tilkynnti ekki um það þegar henni var nauðgað á unglingsárunum í pistli sem birtist í dagblaðinu New York Times í morgun.

Réðu konu til að ræða við meint fórnarlamb Kavanaugh

Allir ellefu þingmenn Repúblikanaflokksins í dómsmálanefndinni eru eldri karlar og hafa þeir óttast hvernig það myndi líta út að þeir myndu spyrja hana út í ásakanir hennar og óttast að tapa atkvæðum kvenna þegar svo stutt er í þingkosningar.

Sífellt fleiri trúa að Kavanaugh sé sekur um kynferðisbrot

Kannanir sýna að sífellt fleiri kjósendur í Bandaríkjunum snúast gegn Brett Kavanaugh, sem er tilnefndur sem hæstaréttadómari, en hann er sakaður um kynferðisbrot á yngri árum. Hann segist þó alls ekki ætla að draga sig í hlé, enda sé ekkert hæft í þeim ásökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×