Real Madrid heldur áfram að tapa stigum í spænsku úrvalsdeildinni en liðið gerði tapaði fyrir Alaves í kvöld, 1-0.
Real hafði mikla yfirburði í leiknum en skyndisóknir heimamanna í Deportivo Alaves voru þó hættulegar.
Ekkert mark var skorað fyrr en í uppbótartíma er Manu Garcia skoraði sigurmarkið.
Vandræði Real halda áfram. Liðið hefur ekki unnið síðan það vann Espanyol 22. september; þrjú töp og tvö jafntefli.
Real er með fjórtán stig eftir sjö leiki; fjórir sigrar, tvö jafntefli og eitt tap. Barcelona er á toppnum með fjórtán stig.
Alaves er í sjötta sæti deildarinnar með ellefu stig.
