Gilsfjörður er sá fjörður sem næstum klýfur Vestfjarðakjálkann frá öðrum landshlutum. Garpsdalur opnast fyrir miðjum firðinum að norðanverðu og þar vilja menn núna virkja vindinn. En fyrst þurfti að spyrja Garpsdalshjónin Hafliða Ólafsson og Ingibjörgu Kristjánsdóttur.
„Það komu hingað útlendingar í vetur og höfðu áhuga fyrir þessu,“ segir Hafliði bóndi frá Garpsdal.

„Mér líst ágætlega á það, ef það verður einhverntímann að veruleika,“ segir Hafliði og segir þetta mjög stórar hugmyndir; að reisa 115 megavatta vindmylluorkuver á fjöllunum inn af Garpsdal fyrir 16,2 milljarða króna. Það yrði stærsta fjárfesting í sögu Reykhólahrepps.
„Þetta er ótrúlegt. 35 vindmyllur, - ég held að hvert stykki sé 150 metrar á hæð. Mér skilst að orkan frá þessu sé á við tvær Hvalárvirkjanir, þannig að ég held að það hljóti allir að fagna þessu,“ segir Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps.

„En þetta er 25 ára líftími sem vindmyllur hafa. Og eftir 25 ár þarftu að taka þetta niður og þá sést ekkert í náttúrunni eftir þetta. Þannig að: Prufa þetta í 25 ár,“ segir oddvitinn.
Ef öll leyfi fást er stefnt að því að framkvæmdir hefjist eftir þrjú ár og raforkuframleiðsla árið 2022.
„Að minnsta kosti hefur verið talað um 4-6 störf. Þá erum við að tala um tæknimenntuð störf sem við myndum nú fagna hér í sveitinni,“ segir Ingimar.

Svo kæmu af þessu umtalsverð fasteignagjöld, segir oddviti Reykhólahrepps.
„Ég myndi segja að þetta hefði mjög góð áhrif fyrir þetta sveitarfélag. Og fyrir utan náttúrulega rafmagnsöryggið,“ segir Ingimar.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: