„Safna alveg í kringum mig fólki sem lætur mig fá það óþvegið“ Stefán Árni Pálsson skrifar 25. október 2018 10:30 Hildur Björnsdóttir er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Hildur Björnsdóttir er lögfræðingur að mennt, bjó í London um árabil, veit þó ekkert skemmtilegra en að gera upp íbúðir og safnar í kringum sig fólki sem á í engum erfiðleikum með að segja henni til þegar þess þarf. Sindri bankaði upp á hjá Hildi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins klukkan 8:00 um morgun og fékk að kynnast morgunrútínu þessarar þriggja barna móður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi. Hildur segist vera a-manneskja sem elski samt sem áður að sofa út. Hún talaði einnig um starfið við Sindra Sindrason og segist hafa mest gaman af því að ræða við fólk sem er henni ósammála. „Við getum alveg borðað saman í vinnunni og gerum það oft,“ segir Hildur um andstæðinga sína í borginni.En hver er leiðinlegastur í vinnunni?„Ég er ábyggilega leiðinlegust,“ segir Hildur í léttum tóni.Gamaldags þras „Mér finnst pólitíkin stundum óttalegt þras og stundum svolítið gamaldags. Ég held að það sé svolítið ákall í þjóðfélaginu um breytt stjórnmál og ég hélt að við værum komin aðeins lengra í því. Þetta er mikið um leikrit og baráttu um það hver á einhverja tillögu og bara frekar hallærislegt.“ Hún segist vera mjög ánægð með það að hún skildi hafa prófað að fara út í pólitík, en langar hana að verða borgastjóri? „Þetta er mjög stór spurning. Ég ætla bara að klára þetta kjörtímabil og ég hef lært það að maður veit aldrei hvar maður verður staddur í lífinu eftir nokkur ár. Ég ætla bara að vera í þessu núna, gera það vel og svo veit ég ekkert hvar ég verð eftir nokkur ár.“ Hún segist ekki hafa mikið álit á fólki sem getur ekki verið heiðarlegt og komið til dyranna eins og það er klætt. „Ég safna alveg í kringum mig fólki sem lætur mig fá það óþvegið og ég kann alveg að meta það.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Lífið „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ Tónlist Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sjá meira