Konráð S. Guðjónsson var gestur útvarpsþáttarins Brennslunnar í morgun þar sem hann ræddi tillögur Ásmundar Einars Daðasonar, félagsmálaráðherra, um að lögfesta svokallað leiguþak. Í stuttu máli: Að leigusalar megi ekki rukka hærri leigu en það sem kveðið yrði á um í lögum.
Sjá einnig: Til skoðunar að setja þak á leiguverð
Konráð segir að þrátt fyrir að slíkar lausnir hljómi vel séu þær þó ekki til þess fallnar að bæta stöðu leigjenda. „Þetta er í rauninni virkilega slæm hugmynd. Maður spyr sig hvort þetta sé ekki bara einhver popúlismi,“ segir Konráð.
„Þegar þú hugsar um leiguþak þá hugsar þú, sem leigjandi: Það er fínt, þá getur leigusalinn ekki hækkað verðið neitt meira. Það er ástæðan fyrir því að fólki detti þetta í hug og ég skil alveg að það hljómi vel.“

„Hann þá annað hvort hættir að leigja út íbúðina og rekur þig út úr henni eða þá að hann hugsar að hann „vilji fá eitthvað fyrir peninginn. Ég ætla ekki að vera að borga með íbúðinni,“ segir Konráð. Þá geti eigandi íbúðarinnar gripið til þess ráðs að spara annars staðar á móti, til að mynda með því að draga úr viðhaldi á eigninni.
Þetta geti þannig orðið til þess að færri ákveði að setja eignir sínar á leigumarkaðinn, einfaldlega vegna þess að það borgar sig ekki. „Þannig að á endanum ertu búinn að minnka leigumarkaðinn sem er akkurat í þveröfuga átt við það sem þarf að gera - sem er að fjölga húsnæði, sama hvort það er til að leigja út eða búa í.“
Airbnb og verðbólguskot
Þak á leiguverð geti einnig haft þau áhrif að mati Konráðs að fólk muni heldur leigja út íbúðir sínar til skemmri tíma, til að mynda á Airbnb, telji eigendur meira upp úr því að hafa.Konráð segir að þrátt fyrir að þak á leiguverð sé ekki ákjósanlegt útiloki það ekki annars konar neytendavernd á leigumarkaði.
„En leiguþak, þar sem þú ætlar að stjórna verðinu, það er mjög erfitt. Sérstaklega ef það er mikil hreyfing á markaðnum og verðið getur breyst skyndilega,“ segir Konráð og veltir fyrir sér hvað myndi gerast ef að það kæmi verðbólguskot án þess að leiguþakið yrði hækkað.
„Þá ertu í mjög vondum málum,“ bætir hann við.
„Ég get eiginlega ekki séð að þetta sé að fara að leysa nokkurn vanda.“
Þrátt fyrir að það kunni að hljóma niðurdrepandi segir Konráð að eina lausnin til að vinna á vanda húsnæðismarkaðarins sé einfaldlega að stuðla að frekari uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
„Það er verið að byggja meira, það þarf kannski eitthvað aðeins að gefa í, en það er það eina sem er raunveruleg að fara að breyta þessu eitthvað.“
Það sé því hagur bæði leigjenda og leigusala að leiguþaki verði ekki leitt í lög að sögn Konráðs, sem hlýða má á í spilaranum hér að neðan.