Setti skópar í poka og dró upp hníf Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. nóvember 2018 07:21 Það var nóg að gera hjá lögreglu í nótt. Vísir/Vilhelm
Maður ógnaði starfsmanni verslubar í Kópavogi með hníf eftir að starfsmaðurinn varð vitni að því að maðurinn reyndi að stela skópari. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en þar segir að starfsmaðurinn hafi horft á manninn setja skópar í poka sem hann hafði meðferðis. Óskaði starfsmaðurinn eftir því að fá að sjá í pokann er maðurinn ætlaði að yfirgefa verslunina. Maðurinn sagði hins vegar nei við þeirri bón og hljóp út úr versluninni. Starfsmaðurinn hljóp á eftir manninum og náði tali af honum þegar maðurinn var kominn talsvert langt frá versluninni. Þá dró maðurinn upp hníf, ógnaði starfsmanninum og hljóp í burtu. Þetta var eini þjófnaðurinn úr verslun sem lögregla fékk á sitt borð í gær og í nótt. Að því er fram kemur í dagbók lögreglu var tilkynnt um þjófnað í verslun í póstnúmerinu 105 í Reykavík. Þar höfðu hini meintu þjófar farið í bifreið og ekið á brott. Lögreglan hafði afskipti af fjórum einstaklingum í bílnum og voru þeir handteknir. Eru þeir grunaðir um þjófnað, akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og vörslu fíkniefna. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað í verslun í miðbænum skömmu eftir miðnætti. Þegar lögreglu bar að garði var hinn meinti þjófur á bak og brott. Hann sneri hins vegar aftur á vettvang um tveimur tímum síðar og var hann þá handtekinn. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var hann vistaður í fangageymslum.
Lögreglumál Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira