Fyrsti bóksölulisti ársins hefur nú litið dagsins ljós. Hann er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda (Fíbút) og tekur til bóksölu dagana 1. til 20. nóvember. Þar eru sölutölur frá flestum þeirra búða sem höndla með bækur.
„Þarna skoðum við söluna bæði í heild og út frá ýmsum flokkum að ógleymdum árs-sölulistanum sem tekinn er saman í lokin og sýnir stöðu bóka miðað við heildarsölu ársins,“ segir Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Fíbút.
Barnabækur einkennandi fyrir aðallistann
Hún segir að ekki séu margir eða óþekktir höfundar á listanum sem telur söluna þessa fyrstu þrjár vikur í nóvember. Það gæti þó breyst því nýjar bækur eru enn að streyma í verslanir og því ekki ólíklegt að röðin eigi eftir að riðlast á næstu vikum.
Sú gagnrýni sem Birgitta hefur mátt sæta hefur hins vegar mætt harðri andstöðu, ýmsir hafa á samfélagsmiðlum hvatt til þess að til að mótmæla slíku sé vert að fara og kaupa bækur Birgittu. Og einhverjir gætu hafa svarað því kalli samkvæmt þessu.
Glæpasögurnar halda sínu
Og svo eru það glæpasögurnar sem alltaf virðast eiga jafn góðu gengi að fagna.„Ragnar Jónasson hefur klifrað ofar á vinsældalista með hverju árinu,“ segir Bryndís og útskýrir að bók Arnaldar hafi komið snemma í verslanir og hefur því selst töluvert.

Ásdís Halla til alls vís
Bryndís metur það svo að skáldarimman á toppi metsölulistanna verði svo líklega á milli nýbakaðs Norðurlandameistara í bókmenntum, Auðar Övu og Hallgríms Helgasonar. „Verk þeirra hafa verið stjörnum prýdd og blessuð af öllum gagnrýnendum svo spennandi verður að fylgjast með gengi þeirra.“Og, Ásdís Halla virðist halda áfram að stela senunni í ævisagnadeildinni. „Og svolítið merkilegt að sjá að Tvísaga, metsölubókin sem hún sendi frá sér í fyrra er 10. mest selda ævisagan það sem af er nóvember í ár. Og hún er ekki einu sinni komin út í kilju,“ segir Bryndís.
Topplistinn : söluhæstu titlar Bóksölulistans 1.-20. nóvember
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
- Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
- Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
- Fallegu lögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Afmæli hjá Láru - Birgitta Haukdal
- Dagbók Kidda klaufa 10 - Jeff Kinney
- Henri - Rænt í Rússlandi - Þorgrímur Þráinsson
- Miðnæturgengið - David Walliams
- Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson
- Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir
- Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal
- Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Íslensk skáldverk
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
- Ör - Auður Ava Ólafsdóttir
- Krýsuvík - Stefán Máni
- Heklugjá - Ófeigur Sigurðsson
- Svik - Lilja Sigurðardóttir
- Stormfuglar - Einar Kárason
Þýdd skáldverk
- Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
- Dag einn í desember - Joise Silver
- Mín sök - Clare Machintosh
- Sænsk gúmmístígvél - Henning Mankell
- Lífið heldur áfram - Winne Li
- Becombergageðsjúkrahúsið - Sara Stridsberg
- Litla bakaríið við Strandgötu - Jenny Colgan
- Stúlkan með snjóinn í hárinu - Ninni Schulman
- Ég veit hvar þú átt heima - Unni Lindell
- Saga tveggja borga - Charles Dickens
Ljóð
- Sálumessa - Gerður Kristný
- Haustaugu - Hannes Pétursson
- Ljóðaúrval - Jónas Hallgrímsson - Jónas Hallgrímsson
- Vetrarland - Valdimar Tómasson
- Smáa letrið - Linda Vilhjálmsdóttir
- Hryggdýr - Sigurbjörg Þrastardóttir
- Ljóð muna - Sigurður Pálsson
- Vammfirring - Þórarinn Eldjárn
- Rof - Bubbi Morthens
- Í bakkafullan lækinn - Bjarni Bjarnason
Barnabækur - skáldverk
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Fallegu lögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Afmæli hjá Láru - Birgitta Haukdal
- Dagbók Kidda klaufa 10 - Jeff Kinney
- Henri - Rænt í Rússlandi - Þorgrímur Þráinsson
- Miðnæturgengið - David Walliams
- Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal
Barnafræði- og handbækur
- Jólaföndur - fjólublá / blá
- Aldrei snerta skrímsli!
- Litla límmiðabókin - Einhyrningar
- Settu saman allan heiminn - Leon Gray
- Verkfærasett smiðsins
- Brandarar og gátur 3 - Huginn Þór Grétarsson
- Spurningabókin 2018 - Guðjón Ingi Eiríksson
- Fyrstu orðin púsl og bók
- Slímbók Sprengju-Kötu - Katrín Lilja Sigurðardóttir
- Star Wars: Tilraunir - Disney
Ungmennabækur
- Ljónið - Hildur Knútsdóttir
- Hvísl hrafnanna 2 - Malene Sølvsten
- Rotturnar - Ragnheiður Eyjólfsdóttir
- Hyldýpið - Camilla Sten & Viveca Sten
- Norrænu goðin - Johan Egerkranz
- Fótboltaspurningar 2018 - Bjarni Þór Guðjónsson
- Hefnd - Kári Valtýsson
- Sölvasaga Daníelssonar - Arnar Már Arngrímsson
- Sjúklega súr saga - Sif Sigmarsdóttir
- Bækur duftsins - Philip Pullman
Fræði og almennt efni
- Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson
- Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir
- Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
- LKL 2 - Gunnar Már Sigfússon
- Hvað er í matinn? - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
- Prjónað af ást - Lene Holme Samsöe
- Geggjaðar gátur og góðar - Guðjón Ingi Eiríksson
- Fyrstu mánuðirnir - ráðin hennar Önnu ljósu - Anna Eðvaldsdóttir
- Hvítabirnir á Íslandi - Rósa Rut Þórisdóttir
Ævisögur
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
- Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
- Hasim - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
- Ærumissir - Davíð Logi Sigurðsson
- Ástin, drekinn og dauðinn - Vilborg Davíðsdóttir
- Hundakæti - Þorsteinn Vilhjálmsson
- Nú brosir nóttin - æviminningar Guðmundar Einarssonar - Theódór Gunnlaugsson
- Nú - nú, óskráð saga - hljóðbók - Steinþór Þórðarson segir frá
- Amma - draumar í lit - Hólmfríður Helga Sigurðardóttir
- Tvísaga - Ásdís Halla Bragadóttir
Uppsafnað frá áramótum - söluhæstu bækurnar frá 1. janúar 2018
- Þorsti - Jo Nesbø
- Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Ofurhetjuvíddin - Ævar Þór Benediktsson
- Marrið í stiganum - Eva Björg Ægisdóttir
- Uppgjör - Lee Child
- Uppruni - Dan Brown
- Vegahandbókin 2018 - Steindór Steindórsson
- Mið-Austurlönd- Magnús Þorkell Bernharðsson
- Hvolpasveitin - litabók