Dæmir Arnault fyrir aðra nauðgun og þyngir refsingu Atli Ísleifsson skrifar 3. desember 2018 13:16 Jean-Claude Arnault hefur verið áberandi í sænsku menningarlífi síðustu árin. Vísir/EPA
Dómstóll í Svíþjóð þyngdi í dag dóm yfir hinum 72 ára Jean-Claude Arnault í tveggja og hálfs árs fyrir fangelsi fyrir tvær nauðganir árið 2011. Arnault hefur verið þekktur sem Kulturprofilen í Svíþjóð og hefur mál hans teygt anga sína inn í Sænsku Akademíuna og leitt til afsagnar sjö meðlima hennar síðan í vor. Arnault hafði áður verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir eina nauðgun, en var sýknaður af annarri. Dómnum var í kjölfarið áfrýjað. Dómur Hofréttar í Stokkhólmi var kveðinn upp í dag þar sem Arnault var dæmdur fyrir tvö tilfelli nauðgunar. Dómstóllinn hækkaði einnig skaðabætur, úr 115 þúsund sænskra króna í 215 þúsund krónur, eða um 2,9 milljónir íslenskra króna. Verjandi Arnault segir við sænska fjölmiðla að dómur hofréttar verði áfrýjað til æðra dómstigs.Átján konur stigu fram Arnault neitaði sök í málinu og var úrskurðaður í gæsluvarðhald í september þar sem talið var að hann gæti flúið land áður en dómur myndi féll. Grunsemdir um brot Arnault rötuðu fyrst í fjölmiðla í nóvember 2017 í kjölfar rannsóknar dagblaðsins Dagens Nyheter þar sem átján konur greindu frá því að hafa verið áreittar eða nauðgað af honum. Arnault er giftur fyrrverandi meðlimi Sænsku Akademíunnar og hefur sjálfur verið áberandi í sænsku menningarlífi síðustu ár. Mál Arnault leiddi til þess að í maí síðastliðinn var greint frá því að bókmenntaverðlaun Nóbels yrðu ekki afhent árið 2018.
MeToo Norðurlönd Nóbelsverðlaun Svíþjóð Tengdar fréttir Arnault dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Jean-Claude Arnault hefur verið þekktur sem Kulturprofilen í Svíþjóð og hefur mál hans teygt anga sína inn í Sænsku Akademíuna og leitt til afsagnar sjö meðlima hennar síðan í apríl. 1. október 2018 10:34 Mest lesið Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Erlendir miðlar fjalla um gjaldþrot Play Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Sjá meira
Arnault dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun Jean-Claude Arnault hefur verið þekktur sem Kulturprofilen í Svíþjóð og hefur mál hans teygt anga sína inn í Sænsku Akademíuna og leitt til afsagnar sjö meðlima hennar síðan í apríl. 1. október 2018 10:34