Innlent

Fundu leifar af kanna­bis­ræktun í niður­gröfnum gámum í Rang­ár­valla­sýslu

Atli Ísleifsson skrifar
Gámarnir voru niðurgrafnir og búnir á þann hátt að búið var að byggja smáhýsi ofan á þá til að fela ummerki um loftræstingu og annað sem tilheyrir ræktun kannabisplantna.
Gámarnir voru niðurgrafnir og búnir á þann hátt að búið var að byggja smáhýsi ofan á þá til að fela ummerki um loftræstingu og annað sem tilheyrir ræktun kannabisplantna. Lögreglan
Lögregla gerði húsleit á sex stöðum í Rangárvallasýslu fyrr í vikunni vegna gruns um að þar færi fram umtalsverð ræktun á kannabisplöntum.

Lögreglumenn á Suðurlandi og frá fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu leituðu í tveimur niðurgröfnum gámum sem voru búnir á þann hátt að búið var að byggja smáhýsi ofan á þá til að fela ummerki um loftræstingu og annað sem tilheyrir ræktun kannabisplantna.

Í tilkynningu á vef lögreglunnar segir að í gámunum hafi fundist leifar af kannabisafskurði og ummerki um ræktun. Sömuleiðis var leitað í uppsteyptum kjallara annars óbyggðs sumarhúss og voru sömuleiðis þar ummerki um ræktun kannabisplantna á rúmlega 100 fermetra gólffleti. Einnig hafi verið leitað í sumarhúsi og stöðugám þar við.

„Í sumarhúsinu var ekkert að sjá en í gámnum fundust 15 kannabisplöntur í ræktun. Loks var leitað á heimili manns sem var handtekinn í tengslum við rannsóknina og framvísaði hann búnaði, við húsleit á heimili hans, tengdum ræktun kannabisplantna. Sá kannaðist við að vera eigandi ræktunarinnar í gámnum við sumarhúsið.

Niðurgröfnu gámarnir tveir og kjallarinn sem leitað var í voru samtengdir með myndavélaeftirlitskerfi. Tveir voru handteknir í aðgerðunum og var annar þeirra með sýn á myndavélarnar í síma sínum þegar lögregla handtók hann.

Hann kvaðst hins vegar hafa eftirlitshlutverk með höndum hvað eignirnar varðaði og vildi ekki kannast við aðild að ræktununum. Báðum var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Áfram er unnið að rannsókn málsins en frekari upplýsingar um það verða ekki gefnar að sinni,“ segir í tilkynningunni.

Lögreglan



Fleiri fréttir

Sjá meira


×