Umferðaróhöpp og „kona í góðu ásigkomulagi“ Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 28. janúar 2019 06:27 Það er vetrarlegt um að litast á landinu um þessar mundir. Vísir/vilhelm
Nokkuð var um umferðaróhöpp í borginni eftir að snjókoman lét aftur á sér kræla í gærkvöldi. Einn ók útaf í miðbænum og er sá grunaður um ölvun, þá var tilkynnt um bílveltu á Reykjanesbraut í Garðabænum um klukkan hálfeitt í nótt. Engin meiðsli urðu á fólki en bílinn þurfti að fjarlægja með kranabíl. Þá var bíl ekið á annan bíl í Hafnarfirði og stakk ökumaðurinn af. Hann náðist af lögreglu og var í annarlegu ástandi. Þá ók maður útaf í Breiðholti og sat fastur og reyndist sá einnig undir áhrifum. Þessu til viðbótar var nokkuð um að menn væru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum. Rétt eftir klukkan ellefu var lögregla kölluð til í Grafarvogi. Þar hafði verið tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi liggjandi í snjóskafli í hverfinu. Þegar lögregla kannaði málið reyndist aðilinn vera „kona í góðu ásigkomulagi,“ eins og það er orðað í skeyti lögreglu. Sagðist hún aðeins vera að slaka á í skaflinum og njóta snjókomunnar.
Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira