Kvíðinn heltók Eymund sem talaði fyrst við son sinn þegar hann var 14 ára Stefán Árni Pálsson skrifar 22. janúar 2019 13:30 Eymundur opnaði sig í Íslandi í dag í gær.
Kvíðinn og óttinn við annað fólk var svo mikill að hann gat ekki hugsað sér að umgangast aðra. Hann hefur aldrei verið í föstu sambandi og myndaði ekki tengsl við son sinn fyrr en strákurinn var orðinn fjórtán ára. Í dag er Eymundur Eymundsson á betri stað og fer í grunnskóla landsins til að upplýsa börn um kvíða svo þau sem finna fyrir honum geti brugðist við og leitað sér hjálpar áður en vandinn verður meiri. „Þegar ég byrjaði í fyrsta bekk þá leið mér strax illa. Ég gat ekki lesið og vantaði það og átti strax erfitt með að læra og var sendur í sérkennslu í lestri. Mér var oft strítt út af gleraugunum og var rosalega lítill inni í mér strax,“ segir Eymundur Eymundsson í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.Fékk útrásina í boltanum „Ég var hræddur við allt, ég var hræddur við dýr og mannfólkið. Ég er samt í íþróttum og er í skák en svo þegar árin líða og ég er orðinn tólf ára fer þetta að hafa virkilega áhrif á mig.“ Þá langaði hann ekki að mæta í skólann, varð fyrir einelti og kvíðinn jókst.Hópmynd af Eymundi og hans liðsfélögum í Þór Akureyri 1985.„Ég roðnaði og klökknaði í tíma og ótíma þannig að sjálfsmyndin var enginn, sjálfstraustið ekkert, sjálfsvirðingin enginn. Ég fór ekki í félagsmiðstöðvar, tók ekki þátt í neinu með bekkjarfélögunum og það eina sem hélt mér gangandi voru íþróttir vegna þess að ég var sæmilegur í þeim. Þar fékk ég útrásina, þótt að mér liði illa þar,“ segir Eymundur sem lýsir árunum í grunnskóla á þennan hátt. Hann náði þó að klára grunnskólann. „Ég fór ekki strax í framhaldsskóla og beið í eitt ár þangað til að æskuvinurinn minn kom, svo við gætum farið saman í framhaldsskóla. Þá entist ég í tvo mánuði og þá þurfti ég að hætta og fór að vinna. Ég vann á sama vinnustað í tuttugu ár. Það var þannig að ég fór ekki í kaffi og ekki í mat í vinnunni. Ég tók þetta saman og keyrði heim í mat og leið alveg ótrúlega illa að geta ekki talað um þennan líðan.“ Í tilfelli Eymundur átti staðan þarna bara eftir að versna. „Ég fór aldrei í bíó, ég fór aldrei í bæinn eða aldrei á rúntinn með félögunum. Þegar maður er með svona mikla félagsfælni þorir maður ekki segja hvernig manni líður og hvernig á maður að segja frá því sem maður veit ekki hvað er?“ Hann segist hafa notað áfengi til að drekka í sig kjark.Eymundur ræddi fyrst við son sinn þegar hann var 14 ára.„Ég var oft búinn að drekka áður en ég kom til félaganna og lendi oftast í blackouti. Þegar ég er orðinn 27 ára gamall þá gerist það að ég greinist með bein í bein í mjaðmaliðnum og mér er sagt að ég þurfi að hætta í fótboltanum. Það var rosalega erfitt, þetta var það sem var að halda í mér lífi. Ég fór að drekka bara um helgar og nýtti mér það að vera hættur í boltanum. Það sem gerist 1998 er að ég fer í aðgerð og það er skipt um mjaðmaliðinn í mér og ég fer að vinna eins og brjálæðingur aftur og er búinn að eyðileggja þetta á fimm árum.“ Eymundur var langt leiddur og íhugaði sjálfsvíg margoft. Þetta varð til þess að Eymundur hefur að mestu farið í gegnum lífið einn. Hann hefur aldrei verið í sambandi, aldrei treyst sér til þess en hann á þó 25 ára strák.Svaraði svo fallega „Auðvitað langaði mér að taka þátt í lífinu með honum og vera með honum. Móðirin á líka við veikindi að stríða og ég hafði ekki sjálfstraust til þess að sjá um hann. Hann var tekinn í fóstur lítill og hefur alist upp hjá frábærri fósturfjölskyldu sem eru bara mamma hans og pabbi. Mér finnst það bara æðislegt, því ég gat þetta ekki,“ segir Eymundur sem var ekki í sambandi við son sinn þar til árið 2008 þegar drengurinn var 14 ára. Árið 2005 leitaði hann sér loks hjálpar. Hann skrifaði syni sínum að lokum bréf þar sem hann tjáði honum hvernig staðan væri. „Hann svaraði mér svo fallega og eftir það náði ég sambandi við fósturmömmuna og þau leyfðu mér að hringja í sig. Ég spurði þarna í desember 2008 hvort ég mætti hitta hann og hún sagði að ef ég ætti leið suður væri það sjálfsagt,“ segir hann og aðeins tveimur dögum síðar mætti hann suður. „Við kjöftuðum í þrjá tíma heima hjá þeim og náðum bara góðu sambandi. Þetta er bara svo magnaður strákur. Hann einhvern veginn gerði sér grein fyrir því af hverju ég hefði ekki verið að taka þátt í uppeldinu.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Íslenski boltinn Heilbrigðismál Tengdar fréttir Sálfræðingar eru nauðsynlegt afl inn í skólakerfið Maður spyr sig af hverju séu ekki komnir sálfræðingar í hvern grunn- og framhaldsskóla landsins árið 2015. Til þess að taka á vandanum strax í grunnskóla er nauðsynlegt að hafa sálfræðinga og leyfa þeim að vinna þá 22. maí 2015 07:00 Íþróttahreyfingin andleg veikindi og vanlíðan Íþróttahreyfingin er flott og gerir góða hluti en það er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að gera enn betur. Tölum saman og tökum þessa umræðu lengra um andleg veikindi og vanlíðan ungmenna og fullorðna. 24. júlí 2015 07:00 Lífsins ferðalag Lífið byrjar sem ferðalag þegar við fæðumst. Verkefni lífsins eru margbreytileg og það sem við vissum ekki áður vitum við í dag. 7. janúar 2018 13:31 Allt þetta myrkur var ekki til einskis "Með kvíða og félagsfælni næstum allt mitt líf" 26. ágúst 2014 09:15 Mest lesið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Gagnrýni Fleiri fréttir Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Sjá meira
Sálfræðingar eru nauðsynlegt afl inn í skólakerfið Maður spyr sig af hverju séu ekki komnir sálfræðingar í hvern grunn- og framhaldsskóla landsins árið 2015. Til þess að taka á vandanum strax í grunnskóla er nauðsynlegt að hafa sálfræðinga og leyfa þeim að vinna þá 22. maí 2015 07:00
Íþróttahreyfingin andleg veikindi og vanlíðan Íþróttahreyfingin er flott og gerir góða hluti en það er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að gera enn betur. Tölum saman og tökum þessa umræðu lengra um andleg veikindi og vanlíðan ungmenna og fullorðna. 24. júlí 2015 07:00
Lífsins ferðalag Lífið byrjar sem ferðalag þegar við fæðumst. Verkefni lífsins eru margbreytileg og það sem við vissum ekki áður vitum við í dag. 7. janúar 2018 13:31
Allt þetta myrkur var ekki til einskis "Með kvíða og félagsfælni næstum allt mitt líf" 26. ágúst 2014 09:15