Það kemur flatt uppá landeiganda á Kjalarnesi að viðræður við landeigendur séu nefndar sem ástæður fyrir því að fresta eigi breikkun Vesturlandsvegar. Einkennilegt sé að slíkt þjóðþrifamál sé stöðvað vegna þess.
Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið frestað og verður eins milljarðs króna fjárveiting sem ætluð var til verksins næstu tvö ár skorin niður í 400 milljónir króna samkvæmt breytingartillögu, sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis lagði fram í vikunni. Ástæðan er sögð tafir við verkhönnun og að samningar hafi ekki náðst við landeigendur.
Hjördís Gissurardóttir landeigandi á Kjalarnesi er undrandi yfir að samningviðræður við eigendur á svæðinu séu nefndar sem ástæður frestunar. Þeir hafi þvert á móti lýst yfir ánægju með áformin.
„Ég held að það hafi bara allir sem ég þekki til verið óskaplega spenntir og hamingjusamir með framkvæmdina. Árið 2017 fórum ég og eiginmaður minn á fund Jónasar Snæbjörnssonar Vegamálastjóra sem kynnti okkur aðgerðirnar og við biðum bara mjög spennt. Svo fórum við á opinn fund í Fólvangi og mér heyrðist íbúar fagna framkvæmdunum.
Við eigum þó nokkuð land hér á Kjalarnesinu og við sitjum þá undir þessu en það er ekki satt, við viljum endilega fá veginn og Sundabrautina sem allra fyrst,“ segir Hjördís.
Hjördís segir mikilvægt að fá meiri upplýsingar í málinu.
„Ef það eru einhverjir landeigendur hér sem stöðva þessar framkvæmdir tel ég mikilvægt að fá upplýsingar um hverjir það eru því þessar framkvæmdir eru lífsnauðsynlegar fyrir þjóðfélagið í heild sinni. Ég hélt þeir hefði ekki rétt á að stoppa svona,“ segir hún.
Hjördís hefur búið á Kjalarnesi í 50 ár og segir umferðina hafa margfaldast á síðustu árum.
„Hann er mjög hættulegur enda hafa verið mörg og dapurleg slys á veginum,“ segir Hjördís að lokum.
Á síðasta ári urðu tvö banaslys á veginum um Kjalarnes og í morgun fagnaði Sigríður Thorlacius söngkona því á Bylgjunni að hafa komist lífs af úr alvarlegu bílsslysi á veginum fyrir þremur árum.

