Real Madrid er átta stigum á eftir toppliði Barcelona eftir að liðið vann 3-0 sigur á Deportivo Alvaes á heimavelli í kvöld.
Karim Benzema kom Real yfir eftir hálftíma leik eftir að hafa fengið stoðsendingu frá varnarmanninum unga, Sergio Reguilon. Staðan 1-0 í hálfleik.
Vinicius Junior skoraði annað markið tíu mínútum fyrir leikslok og þriðja og síðasta mark kvöldsins skoraði Mariano Diaz í uppbótartíma.
Real er með 42 stig í öðru sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliði Barcelona en tveimur stigum á eftir Atletico Madrid sem er í öðru sætinu.
Deportivo er í sjöunda sætinu með 32 stig.
