Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Jóhanna hefur gegnt starfinu frá 1. febrúar 2017. Þá var hún skipuð til eins árs í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi. Sú skipun var framlengd ári síðar og nú er hún skipuð til eins árs í þriðja sinn eftir að lögskipuð hæfisnefnd mat hana hæfasta þeirra fjögurra sem sóttu um stöðuna sem var auglýst í nóvember.
Jóhanna Fjóla hefur starfað við Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá því að hún var sett á fót árið 2010, áður sem framkvæmdastjóri hjúkrunar- og rekstrar og sem verkefnastjóri þróunar- og gæðamála. Hún var verkefnastjóri hjúkrunar árin 2000 – 2009 en fyrir þann tíma starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún var m.a. hjúkrunarforstjóri um eins árs skeið.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Stofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands sem nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.
Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Jóhanna Fjóla skipuð til eins árs í þriðja skipti

Tengdar fréttir

Þau vilja stýra heilbrigðisstofnunum á Vesturlandi og Suðurnesjum
Alls sóttu fjórir um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og sjö um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Jóhanna Fjóla sett forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs, frá 1. febrúar 2017.