Malasískur risi vill kaupa Geirsgötu 11 Kristinn Ingi Jónsson skrifar 27. febrúar 2019 06:00 Fasteignin við Geirsgötu 11, gömul vöruskemma, hefur staðið að mestu ónotuð undanfarin ár og er farin að láta á sjá. Brim hefur síðustu ár kynnt hugmyndir um niðurrif hússins en ekki haft erindi sem erfiði. Fréttablaðið/Ernir
Dótturfélag malasísku fyrirtækjasamsteypunnar Berjaya Corporation, sem var stofnuð af milljarðamæringnum Vincent Tan, eiganda breska knattspyrnufélagsins Cardiff City, er að ganga frá kaupum á fasteigninni að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík. Seljendur eru félögin Fiskitangi og Útgerðarfélag Reykjavíkur sem eru að stærstum hluta í eigu Guðmundar Kristjánssonar, útgerðarmanns og forstjóra HB Granda. Heildarvirði samningsins nemur tæplega 14 milljónum dala eða jafnvirði um 1.670 milljóna króna. Þar af kaupir malasíska félagið, sem ber heitið Berjaya Land Berhad, allt hlutafé í eignarhaldsfélaginu Geirsgötu 11 ehf. fyrir 1,4 milljónir dala og greiðir auk þess upp 12,6 milljóna dala skuld umrædds eignarhaldsfélags við Útgerðarfélag Reykjavíkur. Í tilkynningu sem malasíska félagið sendi til kauphallarinnar þar í landi fyrr í mánuðinum var tekið fram að kaupin á Geirsgötu 11 myndu gefa félaginu tækifæri til þess að hefja fjárfestingar, svo sem á sviði fasteignaþróunar og sér í lagi hótelstarfsemi, á Íslandi. Félagið, sem átti í lok október í fyrra eignir upp á alls 390 milljarða króna, rekur hótel víða í suðausturhluta Asíu sem og í Lundúnum. Gert er ráð fyrir því að fyrirvarar kaupanna verði uppfylltir á næstu vikum, eftir því sem heimildir Markaðarins herma, og að kaupin gangi í gegn í kjölfarið. Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur, vildi ekki tjá sig um viðskiptin þegar eftir því var leitað.Húsið að mestu ónotað Fasteignin við Geirsgötu 11, sem er gömul vöruskemma, hefur staðið að mestu ónotuð undanfarin ár og er farin að láta á sjá. Útgerðarfélag Reykjavíkur og forveri þess, Brim, hafa á síðustu árum kynnt hugmyndir, í samstarfi við norrænu arkitektastofuna PkdM arkitekta, um niðurrif hússins og uppbyggingu á lóðinni en ekki haft erindi sem erfiði.Vincent Tan, stofnandi Berjaya Corporation og eigandi Cardiff CityÞannig samþykkti stjórn Faxaflóahafna síðasta haust, að tillögu skipulagsfulltrúa hafnarinnar, að bíða með framkvæmdir og uppbyggingu á Miðbakka þar til framkvæmdum við Austurhöfn lýkur og ljóst yrði með hvaða hætti skipulag umferðar um Austurbakka og starfsemi á jarðhæð hússins verður. „Á því svæði er nú mikið álag vegna byggingarframkvæmda og rétt er að sjá hvaða áhrif sú uppbygging hefur áður en ráðist er í frekari uppbyggingu á Miðbakka,“ sagði í umsögn skipulagsfulltrúans. Fyrr á árinu hafði umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar tekið neikvætt í tillögu lóðarhafa um uppbyggingu á Miðbakka en samkvæmt þeirri tillögu átti byggingamagn að vera 27.760 fermetrar. Taldi ráðið það of mikið.Eitt stærsta fyrirtæki Malasíu Kaupandi hússins, Berjaya Land Berhad, er dótturfélag samsteypunnar Berjaya Corporation sem er eitt stærsta fyrirtæki í Malasíu. Fjárfestir það meðal annars í lottó- og fjárhættuspilastarfsemi, hótelum og öðrum fasteignaverkefnum, fjarskiptaþjónustu, matvæla- og drykkjarframleiðendum, dreifingarfyrirtækjum, bílasölum og hinum ýmsu framleiðslufyrirtækjum, svo eitthvað sé nefnt. Þá er samsteypan, sem var stofnuð árið 1984 og er með um það bil 14 þúsund starfsmenn, leiðandi á sviði fasteignaþróunar í Malasíu. Byggði hún meðal annars 48 hæða tvíburaturn, að nafni Berjaya Times Square, í Kúala Lúmpúr, höfuðborg Malasíu, árið 2003 en byggingin er sú tíunda stærsta í heimi miðað við gólfflöt. Umrætt hús við Geirsgötu 11, sem malasíska félagið vill eignast, var byggt árið 1982 úr forsteyptum einingum og er varðveislugildi þess ekki talið mikið. Þar var fyrst til húsa útgerð Ríkisskipa en síðar var þar fiskvinnsla Jóns Ásbjörnssonar og Fiskkaupa sem seldu Brimi húsið snemma árs 2007. Fyrir rúmum sex árum gerðu Faxaflóahafnir og lóðarhafinn, Brim, með sér samkomulag um að endurnýja ytra byrði hússins og færa aftur líf í það og kynnti útgerðin meðal annars hugmyndir um að opna þar fiskvinnslu, sýningarsal, fiskmarkað og veitingahús. Ekkert varð hins vegar af þeim áformum.
Birtist í Fréttablaðinu Reykjavík Skipulag Mest lesið „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Viðskipti innlent Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Viðskipti erlent Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Viðskipti innlent Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Viðskipti innlent Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Fleiri fréttir Stofnandi Bláa lónsins nú formaður stjórnar Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Ný sátt gerð og Míla sektuð um 200 milljónir Lítið fékkst upp í 217 milljóna kröfur í bú Kvikmyndaskólans Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Íbúðum til sölu fjölgar verulega frá áramótum Tónabíó opnar á ný Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Vextir hafi sannarlega lækkað en framboðið sé breytt Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Tekur ekki undir fullyrðingar um plat Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Sjá meira