Opinn umræðufundur um laxeldi á verður á veitingastaðnum Sólon (2. hæð) í kvöld klukkan 20. Þar munu takast á, þeir Ólafur I. Sigurgeirsson, lektor við Hólaskóla, og Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verndarsjóði villtra laxastofna.
Þeir Ólafur og Jóhannes eru á öndverðum meiði hvað laxeldi varðar. Þeir gerðu báðir ítarlegar athugasemdir við frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingu á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi.
Gagnrýndi Ólafur meðal annars áhættumat Hafrannsóknarstofnunar sem hann taldi gera of mikið úr hættunni af erfðablöndun við villta laxastofna. Jóhannes lagði á hinn bóginn áherslu á að hættan af erfðablöndun væri síst ofmetin.
Á fundinum munu þeir Ólafur og Jóhannes gera grein fyrir sjónarmiðum sínum, svara fyrirspurnum og taka þátt í umræðum fundargesta.
Verndarsjóður villtra laxastofna, NASF, boðar til fundarins og verður hægt að nálgast streymi af honum á Vísi klukkan 20.
