Halda hvort öðru á tánum Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 2. mars 2019 11:00 Arnar Freyr og Birna hafa starfað saman í fimm ár. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir hjá StudioStudio hafa hannað nýtt útlit fyrir HönnunarMars í ár. Þau hafa vakið mikla eftirtekt fyrir verk sín undanfarið. Þau sérhæfa sig í bókahönnun, ímyndarvinnu, týpógrafíu, umbroti og ýmsu ritstjórnarefni og vinna þvert á geira, bæði fyrir listamenn og fyrirtæki. Arnar er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og kennir þar sem stundakennari. Birna er einnig grafískur hönnuður frá Listaháskólanum og er einnig með meistaragráðu í bókahönnun frá Reading-háskóla í Bretlandi. Birna er fagstjóri í grafískri hönnun í hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Þau starfa saman í Gimli, fallegu turnhúsi á Bernhöftstorfunni við Lækjargötu. „Við höfum unnið saman í fimm ár. Við kynntumst í gegnum fagið og sameiginlega vini,“ segir Birna. „Okkur finnst gott að vinna saman því við höfum svipaða sýn,“ segir hún. „Við höfum misjafna styrkleika og hífum hvort annað upp,“ segir Arnar. „Já, það mætti segja að við höldum hvort öðru á tánum,“ segir Birna. Eitt af nýlegum verkum Arnars og Birnu er bókarkápa, á Sextíu kíló af sólskini, eftir Hallgrím Helgason. Bókarkápan var af álitsgjöfum Fréttablaðsins valin sú besta í ár og vakti almenna eftirtekt fyrir vandað útlit sem hæfði efni bókarinnar vel. Fundur í Hrísey Hugmyndavinnan hófst í Hrísey. „Það sem virkaði vel í þessu ferli er hvað samtalið við hann Hallgrím var gott,“ segir Arnar. „Við vorum í sumarfríi norður í landi þegar Hallgrímur hafði samband við okkur vegna bókarinnar og var þá sjálfur á leiðinni í frí norður, við hittumst í Hrísey og áttum þar samtal um bókina og innihald hennar,“ segir Arnar. „Hann var búinn að sanka að sér myndrænum tilvísunum sem honum þótti viðeigandi. Til dæmis auglýsingum frá þessum tíma, gömlum eldspýtustokkum og slíku,“ segir Birna. Verk þeirra Arnars og Birnu eru fjölbreytt og ólík innbyrðis þótt eflaust megi greina þráð. Veigamikil bók um verk Rögnu Róbertsdóttur er þar á meðal. „Það er allt öðruvísi verkefni með erlendum útgefanda. Það var stærra samtal í gangi, maður þurfti að gera sér ferð á meginlandið. Lengra en út í Hrísey,“ segir Birna og hlær. „En það var eins með hana. Við áttum gott samtal við hana og fengum aðgang að öllum hennar verkum,“ segir Arnar. Birna tekur undir og segir samtalið mikilvægt. „Já, það er vænlegast til vinnings. Í samtalinu finnur maður líka hvort maður er rétti aðilinn í verkið. Því þetta er alltaf persónulegt og maður gefur sig allan í þetta. Þegar maður er búinn að skila af sér verki þá er stundum allur vindur úr manni,“ segir Birna. Jákvæð þróun Þeim fannst áhugavert að takast á við að hanna nýtt útlit fyrir HönnunarMars. Í hönnuninni tóku þau tillit til þess að hátíðin er bæði fyrir fagfólk og áhugafólk um hönnun. „Þetta er þannig verkefni að það er eðlilegt að það sé rótering á þessu. Við höldum samt í ákveðna þræði sem er búið að leggja undanfarin 10 ár. Þetta snýst ekki endilega um að finna upp hjólið heldur byggja ofan á þá þekkingu sem er komin. „Já, það er mikilvægt að fólk finni fyrir því að þetta sé hátíð sem er alltaf í þróun. Og það þarf að tala bæði til hönnuða og líka þeirra sem hafa áhuga á hönnun, eru forvitnir og áhugasamir,“ segir Birna. Þau eru sammála um að hönnun hafi sífellt meira vægi í íslenskri menningu. „Það er mjög jákvæð þróun í gangi. Fólk sér mikilvægið og sérstöðuna. Frá því að ég fór að velta hönnun fyrir mér finnst mér landslagið hafa breyst,“ segir Birna. „Margir eru að gera virkilega spennandi hluti,“ segir Arnar. „Það er til dæmis mikið af sjálfsprottnum verkefnum og mikil flóra. Mjög fjölbreytt stemming,“ segir Birna. Og hefur orðstírinn aukist? Út á við? „Þegar við erum að vinna erlend verkefni líður manni stundum eins og það sé verið að sækja vatnið yfir lækinn. En kannski höfum við eitthvað annað fram að færa sem skiptir máli. Einhverja aðra sýn,“ segir Arnar.
Birtist í Fréttablaðinu HönnunarMars Tíska og hönnun Mest lesið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál „Ég var mjög reiður út í heiminn í marga mánuði“ Lífið Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Finnur þú fyrir uppþembu eða óþægindum eftir mat? Lífið samstarf Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Lífið Fleiri fréttir Gaman að sjá íslenska hönnun skína í dönsku tískusenunni Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Halla forseti rokkar svart og hvítt Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Steldu meðgöngustílnum af Tönju Ýr Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Halla í peysufötum langömmu sinnar Sjá meira