Innlent

Hræðast áhrif yfirvofandi verkfallsaðgerða

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Ferðaþjónustuaðilar óttast að yfirvofandi verkfallsaðgerðir skaði samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum markaði. Þegar hafa borist afbókanir á hótel og spurst út til ferðamanna að hætta sé á verkföllum á næstunni.

Áætlaðar verkfallsaðgerðir Eflingar og VR munu hafa mikil áhrif á starfsemi tuttugu stærstu hótela og rútufyrirtækja. Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Reykjavík Excursion, segir ferðaþjónustuna í alþjóðlegri samkeppni og hræðist að samkeppnishæfni Íslands verði slæm. Ferðamenn séu mikið að bóka ferðir á þessum tíma og þegar hafi spurst út fyrir landsteinana að hætta sé á verkfallsaðgerðum hér á landi.

„Aðgerðunum er svolítið beint gegn því að valda dálítið miklum skaða áákveðnum álagstímum í okkar þjónustu. Það auðvitað kemur illa við okkur. Í tillögunum er til dæmis gert ráð fyrir að starfsmenn komi til vinnu í hádeginu. Eins og viðþekkjum þá koma flugvélarnar á morgnanna og svo auðvitað seinni partinn koma vélarnar inn. Þetta hefur vissulega mikil áhrif og getur skaðað okkur,“ segir Björn.



 

Kristófer Oliversson, formaður félags í hótel- og gistiþjónustu.Vísir/Egill
Hóteleigendur sem fréttastofa ræddi við í dag ætla nokkrir að bíða átekta eftir niðurstöðu félagsdóms, þá hvort atkvæðagreiðslan verði dæmd ólögleg. Aðrir hafa hafið undirbúning til að bregðast við verkfallinu 8. mars, svo gestir þeirra finni sem minnst fyrir því, þó án þess að brjóta verkfallslög. Borið hefur á afbókunum en þó ekki í miklu magni enn sem komið er að þeirra sögn. Vonin sé þó að ekki komi til verkfalla.

„Auðvitað óttumst við það að markaðurinn verður skemmdur til lengdar. Það er það sem við óttumst. Þetta er mjög viðkvæmur markaður og mjög slæmur tími. Auðvitað er allur tími slæmur fyrir verkföll, en það er eiginlega staða sem getur ekki komið upp að fólki sé meinað aðgangur að hótelum þegar það er komið hingað til landsins,“ segir Kristófer Oliversson, formaður félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.  


Tengdar fréttir

Kosið um allsherjarverkfall á Skaganum

Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur ákveðið að láta fara fram allsherjaatkvæðagreiðslu um verkfallsboðun meðal félagsmanna sinna sem heyra undir kjarasamning sem félagið á við Samtök atvinnulífsins vegna veitinga-, gisti-, þjónustu og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.

VR stefnir á fimm­tán verk­falls­daga og svo alls­herjar­stopp þann 1. maí

Stjórn VR samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2019, að boða til leynilegrar atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum á félagssvæði VR og í gistiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði. Aðeins starfsmenn fyrirtækja, sem verkfallið mun taka til, munu greiða atkvæði um verkfall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×