Engin lækning til Florealis kynnir 28. mars 2019 09:15 ,,Skortur á úrræðum fyrir fólk með mígreni hvatti okkur til að koma með jurtalyfið Glitinum en það er eina lyfið til að fyrirbyggja mígreniköst sem fæst án lyfseðils í apótekum,” segir Elsa Steinunn Halldórsdóttir, doktor í lyfjafræði og þróunarstjóri Florealis Florealis
Mígreni er meðal algengustu heilsufarsvandamála heimsins en um einn af hverjum tíu þjáist af mígreni. Engin lækning er til við sjúkdómnum sem er ein helsta ástæða vinnutaps hjá fólki. Á sama tíma er ekki alltaf skilningur fyrir þessu ástandi sem getur bæði haft áhrif á lífsgæði fólks, daglegt líf og árangur í starfi.Ný leið til að fyrirbyggja mígreniFlorealis býður upp á jurtalyfið Glitinum en lyfið er eina viðurkennda meðferðin til að fyrirbyggja mígreni sem fæst án lyfseðils á Íslandi. ,,Mígreni er flókinn taugasjúkdómur og einkennist af slæmum höfuðverkjaköstum sem geta varað í nokkra daga þó að algengast sé að köstin gangi yfir á nokkrum klukkustundum. Köstin eru oft það slæm að fólk er rúmfast á meðan þau ganga yfir,” segir Elsa Steinunn Halldórsdóttir, doktor í lyfjafræði og þróunarstjóri hjá Florealis. ,,Fólk getur upplifað mikla ógleði á meðan köstunum stendur og kastar jafnvel upp. Þá er algengt að verða sérstaklega viðkvæmur fyrir ljósi, hljóðum og öðru áreiti. Sumir fá tvö til fjögur köst á mánuði og eiga þá erfitt með að sinna daglegu lífi á meðan. Þetta getur því haft gífurleg áhrif á fólk.”GlitinumFátt annað í boðiGlitinum er viðurkennt af Lyfjastofnun og inniheldur þurrkaða glitbrá. Glitbrá er mikið rannsökuð og hefur verið notuð sem lyf til að fyrirbyggja mígreni í yfir 40 ár. Klínískar rannsóknir sýna að glitbráin í Glitinum getur fyrirbyggt mígreniköst, fækkað köstum og lengt tímann á milli kasta. ,,Það er í raun fátt í boði fyrir fólk með mígreni annað en að taka verkjalyf og reyna að forðast áreiti sem getur komið kasti af stað,» segir Elsa. „Í alvarlegri tilfellum eru gefin sérstök mígrenilyf en þau henta ekki öllum. Takmörkuð úrræði voru okkur hvatning til að kynna jurtalyfið Glitinum til leiks en það er eina lyfið til að fækka mígreniköstum sem fæst án lyfseðils í apótekum.”.Sérstaklega algengt hjá konumMígreni er sérstaklega algengt á meðal kvenna en allt að 18% kvenna eru með mígreni samanborið við 6% karla. ,,Það er stundum vanmetið hversu gífurlega algengt mígreni er og þá sérstaklega hjá konum. Það er ekki vitað hvers vegna en mjög margar konur þekkja þetta og sumar fá til dæmis mígreniköst í kringum tíðablæðingar. Glitinum getur verið góður kostur fyrir þessar konur sem og aðra sem þjást af mígreni, sé lyfið notað rétt,” segir ElsaGagnlegar upplýsingarGlitinum fæst án lyfseðils í öllum apótekum. Glitinum er jurtalyf sem hefð er fyrir til að fyrirbyggja mígreni og skal taka 1 hylki daglega í allt að þrjá mánuði í einu. Glitinum er ekki ætlað ungmennum og börnum undir 18 ára, þunguðum konum eða konum með barn á brjósti. Tilgreindar ábendingar eru eingöngu byggðar á langri sögu um notkun lyfsins. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðil fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is og á www.florealis.is/glitinumÞessi kynning er unnin í samstarfi við Florealis.
Heilsa Mest lesið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Hyggjast halda breytta Söngvakeppni á næsta ári Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Menning Einfalt og frísklegt útlit fyrir hlaupið Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira