Körfubolti

Enn eitt tapið hjá Celtics │Houston tryggði sig í úrslitakeppnina

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kyrie Irving og félagar eru í vandræðum
Kyrie Irving og félagar eru í vandræðum vísir/getty
Boston Celtics tapaði fjórða leiknum í röð í NBA deildinni í körfubolta í nótt. New Orleans Pelicans réðu ekkert við James Harden og stjörnurnar í Golden State Warriors skinu skært.

LaMarcus Aldridge var óstöðvandi í liði San Antonio Spurs sem fór létt með Boston Celtics á heimavelli þeirra grænu í nótt. Aldridge var með 48 stig og 13 fráköst, en Spurs vann leikinn 115-96.

Eftir leikinn funduðu leikmenn Celtics lengi á bak við luktar dyr áður en þeir sinntu sínum hefðbundnu fjölmiðlaskyldum eftir leiki.

„Það er erfitt að vinna. Liðsumhverfi er erfitt,“ sagði Kyrie Irving eftir leikinn en hann skoraði 11 stig og gaf 12 stoðsendingar í leiknum.

„Þetta er ekki svo einfalt að það sé nóg að hlusta á alla aðra tala um hvað sé í gangi hjá liðinu. Það hefur enginn verið í minni stöðu áður, svo ég býst ekki við að neinn skilji það og þá getur enginn talað um það.“





Í New Orleans setti James Harden 28 stig þegar Houston Rockets vann 113-90 sigur á New Orleans Pelicans og tryggði sæti sitt í úrslitakeppninni. Hann spilaði hins vegar rétt um 29 mínútur í leiknum.

Rockets vann fjórtánda leikinn af síðustu sextán og eru þeir komnir upp í þriðja sæti vesturdeildarinnar.

Heimamenn komust aldrei yfir í leiknum en það vantaði stór skörð í lið þeirra. Af þeim sem spiluðu leikinn var Frank Jackson stigahæstur með 19 stig.





Ríkjandi meistarar í Golden State Warriors töpuðu stórt fyrir Dallas Mavericks um helgina en það var ekki upp á teningnum í nótt þegar þeir fengu Detroit Pistons í heimsókn.

Stephen Curry, sem hafði hvílt í leiknum gegn Dallas, skoraði 26 stig og Klay Thompson bættu við 24 í leik þar sem stóru nöfnin sýndu afhverju þeir taka sviðsljósið svo oft. Golden State vann leikinn 121-114.

Kevin Durant setti 14 stig og 11 stoðsendingar og Draymond Green var einnig með 14 stig.

„Það leið engum vel eftir tapið, ekki heldur okkur sem spiluðum ekki leikinn. Það sást vel á leik okkar í kvöld að við vildum svara fyrir það strax,“ sagði Curry eftir leikinn.

Golden State er í harðri baráttu við Denver Nuggets um toppsæti vesturdeildarinnar.





Úrslit næturinnar:

New York Knicks - LA Clippers 113-124

Milwaykee Bucks - Cleveland Cavaliers 127-105

Indiana Pacers - Denver Nuggets 124-88

Toronto Raptors - Charlotte Hornets 114-115

New Orleans Pelicans - Houston Rockets 90-113

Boston Celtics - San Antonio Spurs 96-115

Golden State Warriors - Detroit Pistons 121-114

Los Angeles Lakers - Sacramento Kings 111-106

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×