Fjórir sýknaðir vegna lestarárásar í Indlandi árið 2007 Atli Ísleifsson skrifar 20. mars 2019 20:56 Þrír hinna ákærðu, Kamal Chauhan, Rajinder Chaudhary og Lokesh Sharma fyrir utan þinghúsið í Panchkula. Getty
Dómstóll í ríkinu Himachal Pradesh í Indlandi hefur sýknað fjóra menn af ákæru um að hafa komið fyrir sprengjum í lest á ferð milli Indlands og Pakistans árið 2007. Dómarar sögðu sannanir skorta til sakfellingar. Mikill eldur kom upp eftir að tvær heimagerðar sprengjur sprungu í Samjhauta Express lestinni í febrúar 2007. Alls fórust 68 manns í árásinni, flestir pakistanskir ríkisborgarar. Saksóknarar í Indlandi sögðu hina ákærðu, sem eru hindúar, hafa borið ábyrgð á sprengingunum til að hefna sín á árásum íslamskra öfgamanna gegn hofum hindúa. Upphaflega voru átta manns grunaðir um árásina. Einn þeirra var myrtur í lok 2007, fjórir voru leiddir fyrir dómara, en þrír eru enn á flótta. Einn þeirra sem nú hefur verið sýknaður hefur áður setið í fangelsi vegna málsins eftir að hann játaði aðild að brotunum. Hann dró hins vegar játninguna síðar til baka og sagðist hafa verið pyndaður. Mikil spenna hefur verið í samskiptum Indlands og Pakistans að undanförnu.
Indland Pakistan Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira