Krakkar í skólahljómsveitum í Reykjavík blása um þessar mundir We Will Rock You af miklum móð og þverflautur og önnur blásturshljóðfæri og í Seyðisfjarðarskóla er bassinn plokkaður og Bohemian Rhapsody leikið á píanó.
„Ég er að kenna unglingum Seyðisfjarðarskóla og það er mjög greinilegt að þeim, kannski aðallega strákunum, finnist þeir og Freddie Mercury sérstaklega alveg hrikalega töff,“ segir Benedikt Hermann Hermannsson, einnig þekktur í tónlistinni sem Benni Hemm Hemm. „Ég hef alveg heyrt þetta úr fleiri áttum þannig að það er ekkert bara hérna sem krakkar eru í þessum gír.
Þau eru að kynnast þessari tónlist í gegnum þessa mynd,“ segir Benni um þessa nýju og nokkuð óvæntu kynslóð Queen-aðdáenda. „Maður fattar það ekki alveg þegar maður er orðinn miðaldra að fólk þekki ekki bara Queen sjálfkrafa.“

Þar sagði Arnar Eggert myndina vera frábæra en viðbrögðin við þeirri yfirlýsingu voru ekki öll jafn jákvæð. „Fólk var eitthvað að hafa skiptar skoðanir á þessu og ég sagði að mér þætti hún góð, þótt ég hefði ekki séð hana, vegna þessa.“
Benni segir samanburði myndarinnar við raunveruleikann í vandlætingartóni litlu skipta þegar horft sé til þessara jákvæðu áhrifa sem myndin hefur á unglingana. „Þegar maður sér þetta og metur þessa tvo póla þá finnst mér ekki spurning hvað skiptir meira máli.“
Benni segir það enga spurningu að myndin kveiki áhuga krakkanna á því að læra á hljóðfæri. „Hér er til dæmis einn strákur sem er ekki að læra á hljóðfæri en er búinn að læra byrjunina á Bohemian Rhapsody á píanó og maður gerir það ekkert nema mann langi virkilega til þess. Akkúrat núna er hann að spila á fullu á píanó og það er annar sem er að læra bassalínuna í Under Pressure.“
Benni segist ekki geta séð að Queen-æðið kveiki áhuga á einu hljóðfæri umfram annað. „Ég hefði skotið á að það væri píanóið en þetta er greinilega ekkert bundið við það.“
Bassinn kemur einnig sterkur inn, jafnvel umfram rafmagnsgítarinn sem sá mikli meistari Brian May hefur þanið með Queen í áratugi. „Ég er alltaf að tala um hversu frábær hann er en hann er einhvern veginn ekkert efstur á blaði,“ segir Benni og bætir við að það virðist mjög handahófskennt og einstaklingsbundið hvað heillar.
„Kannski er hann ekkert spennandi í myndinni, ég veit það ekki. Annars þarf ég náttúrlega að sjá þessa mynd til þess að geta sagt eitthvað af viti um hana en mér finnst þessi áhrif bara frábær.“
Benni viðurkennir fúslega að hann sé sjálfur mikill Queen-aðdáandi og hafi frætt nemendur sína um hana áður en æðið skall á. „Ég hef alveg kynnt Queen fyrir krökkum sem þekkja ekki hljómsveitina og það er eitthvað í þessari tónlist sem gerir það að verkum að maður þarf ekki nostalgíuna til þess að tengja við hana. Það er einhver grunnkjarni í tónlistinni sem allir tengja við og krakkar fatta strax.“