Innlent

Handtekinn fyrir líkamsárás og rúðubrot

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Maðurinn var handtekinn í miðbænum. Mynd tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Maðurinn var handtekinn í miðbænum. Mynd tengist efni fréttarinnar ekki beint. Vísir/Kolbeinn Tumi
Maður í annarlegu ástandi var handtekinn klukkan fjögur í nótt í miðbænum fyrir líkamsárás og rúðubrot. Hann var vistaður í fangageymslu en sjúkraflutningamenn gerðu að sárum þolanda á vettvangi. Áverkarnir eru minniháttar, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Þá voru fjórir ökumenn handteknir á höfuðborgarsvæðinu, grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Ökumennirnir voru látnir lausir að loknum sýnatökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×