Mussolini karpar við Jim Carrey Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 2. apríl 2019 07:30 Allessandra Mussolini. Vísir/Getty
Kanadíski stórleikarinn Jim Carrey átti væntanlega ekki von á því að fá viðbrögð frá barnabarni ítalska einræðisherrans Benito Mussolini þegar hann birti teikningu af Mussolini í snörunni um helgina. „Ef þið eruð að velta afleiðingum fasisma fyrir ykkur getið þið spurt Benito Mussolini og hjákonu hans, Clarettu,“ sagði í tísti Carreys með myndinni. Alessandra Mussolini, barnabarn einræðisherrans, svaraði degi síðar og sagði að Carrey væri skíthæll. „Donald Trump forseti þarf ekki að hafa áhyggjur af pólitískum árásum aumingja Jims Carrey. Teikningar hans eru ómerkilegur pappír,“ tísti Mussolini svo og minnti einnig á atburði úr Bandaríkjasögunni á borð við þjóðarmorð á frumbyggjum. Mussolini hefur setið á Evrópuþinginu frá árinu 2014 og sat þar áður á því ítalska fyrir Forza Italia, flokk Silvio Berlusconi. Sagði þó skilið við flokkinn á síðasta ári þegar hann ákvað að vera í andstöðu við núverandi ríkisstjórn. Hún er síður en svo óumdeild. Árið 2006 sagði transkonan og þingmaðurinn Vladi Luxuria að hún væri fasisti. Mussolini svaraði og sagðist frekar vilja vera „fasisti en kynvillingur“
Birtist í Fréttablaðinu Ítalía Mest lesið Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Erlent Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Erlent Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun Innlent „Mér liggur við að segja að það eigi að fara að afgreina fólk“ Innlent Ekki séð stærri hval reka í Víkurfjöru Innlent „Sá sem býður lökustu kjörin á landinu fær augljóslega ekki starfsmann“ Innlent Hvorugur kannaðist við að hafa verið að keyra bílinn Innlent Björgunarsveitir aðstoðað tugi vegfarenda Innlent Á 502 derhúfur og segir það ákveðna bilun Innlent Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Erlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Sjá meira