Verðhækkanir boðaðar vegna kjarasamninga Baldur Guðmundsson skrifar 20. apríl 2019 08:00 Í pósti ÍSAM segir líka að allar innfluttar vörur muni hækka um 1,9%, verði samningarnir samþykktir. VÍSIR/HANNA
ÍSAM, heildsölu- og framleiðslufyrirtæki sem á Mylluna, Ora, Kexverksmiðjuna Frón og Kexsmiðjuna boðar 3,9% hækkun á öllum vörum fyrirtækjanna verði kjarasamningar samþykktir. Þetta kemur fram í tölvupósti Hermanns Stefánssonar, forstjóra ÍSAM, til viðskiptavina. Í póstinum segir líka að allar innfluttar vörur muni hækka um 1,9%, verði samningarnir samþykktir. Samtök atvinnulífsins undirrituðu kjarasamninga við félög verslunarmanna og aðildarfélög Starfsgreinasambandsins í byrjun apríl. Þessa dagana eru meðlimir þessara verkalýðsfélaga að kjósa um samninginn, en í stuttu máli gengur samningurinn út á að hækka laun þeirra lægst launuðu mest. Hjá VR er atkvæðagreiðslu lokið en niðurstöður verða ekki birtar fyrr en 23. apríl, þegar atkvæðagreiðslu hjá hinum félögunum er einnig lokið. Fréttablaðið.is greindi frá því í gær að Myllan, sem er í eigu ÍSAM, muni hækka verð um 2,7% verði nýir kjarasamningar samþykktir. Nú er ljóst, samkvæmt tölvupósti ÍSAM til viðskiptavina, að hækkanirnar eru enn víðtækari. Ora, Frón og Kexsmiðjan munu hækka verð um 3,9%, verði samningarnir samþykktir auk þess sem innfluttar vörur verða hækkaðar um 1,9%. „Þar sem ekki er búið að samþykkja kjarasamningana er hækkunin með fyrirvara um að þeir verði samþykktir,“ segir Hermann í póstinum. „Með von um skilning og áframhaldandi góða samvinnu.“
Birtist í Fréttablaðinu Kjaramál Neytendur Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Sjá meira