Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu: „Svikahrappar sofa aldrei“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 4. maí 2019 09:46 Hótunarbréf, í ýmsum útgáfum, berast almenningi í sífellu en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill minna á mikilvægi þess að líta á slík bréf með gagnrýnum augum því líkur séu á því að tölvuþrjótar hafi sent bréfin í þeim tilgangi að svíkja fé út úr fólki.
Hótunarbréf, í ýmsum útgáfum, berast almenningi í sífellu en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill minna á mikilvægi þess að líta á slík bréf með gagnrýnum augum því líkur séu á því að tölvuþrjótar hafi sent bréfin í þeim tilgangi að svíkja fé út úr fólki. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við því að hlýða skipunum tölvuþrjótanna og borga þeim en í hótunarbréfunum er farið fram á að viðtakandi bréfsins greiði ákveðna upphæð til að koma í veg fyrir að myndskeið, sem þeir segjast búa yfir, verði sent til allra á póstlista viðtakandans. Lögreglan vill benda á að ekki er mælt með að þessi upphæð sé greidd. „Þetta eru svikapóstar sem sendir eru á tölvupóstföng sem ganga kaupum og sölum á vefnum og þegar lykilorð móttakandans er einnig gefið upp þá gefur það til kynna að þau lykilorð hafi komið upp í einhverjum lekum.“ Ekkert gefi þó til kynna að tölvuþrjótarnir búi yfir téðu myndskeiði og því um innantómar hótanir að ræða. „Svikahrappar sofa aldrei, að því er virðist,“ segir í tilkynningu lögreglu sem mælir þó með því að fólk hylji vefmyndavélar þegar þær er ekki í notkun og breyti reglulega um lykilorð. Þá sé gott að vera með tvíþætta auðkenningu til að gera brotamönnum erfiðara fyrir þó þeir komist yfir lykilorðin.
Lögreglumál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Erlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira