Reyndu 77 sendingar inn í vítateig KA en töpuðu samt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2019 17:15 Guðjón Baldvinsson. Vísir/Bára
Stjörnumenn voru mjög framarlega í flestum tölfræðiþáttunum í 5. umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta og það þrátt fyrir að ganga stigalausir af velli eftir tap á heimavelli á móti KA. Þegar tölfræðigreining Instat er skoðuð nánar kemur ýmislegt athyglisvert í ljós úr þessum leik sem endaði 2-0 fyrir KA. Það eru nokkur dæmi í tölfræðinni um yfirburði Stjörnuliðsins í þessum leik. Stjörnumenn reyndu sem dæmi 77 sendingar inn í vítateig í leiknum og 37 þeirra heppnuðust. Næsta lið var með 43 sendingar inn í teig og 22 heppnaðar en mótherjar Garðabæjarliðsins í KA voru aðeins með 19 sendingar inn í teig og þar heppnuðust aðeins níu þeirra. Stjarnan reyndi þannig 33 fyrirgjafir í leiknum á móti aðeins 8 hjá öllu KA-liðinu. Stjörnumenn reyndu líka 22 skot á móti 8 hjá KA. Stjarnan var þar í 1. sæti yfir lið deildarinnar í fimmtu umferðinni en KA-liðið aðeins í 11. sæti. Varnarmenn KA komust fyrir ellefu af þessum skotum Stjörnunnar og þrjú þeirra enduðu í slá eða stöng. Stjarnan og KA áttu aftur á móti jafnmörg skot á markið í leiknum en fjögur hvort lið. Það sem meira er að liðin sköpuðu bæði fimm færi í leiknum og skot Garðbæinga voru því ekki að koma úr nógu góðum færum. Stjörnuliðið var með boltann í 33 mínútur og 43 sekúndur eða 55,8 prósent leiktímans. KA-liðið var átta mínútum færra með boltann í leiknum. Stjörnumenn höfðu líka betur í baráttunni því þeir unnu 56 prósent af tæklingum leiksins (68 á móti 54) sem og fleiri skallaeinvígi eða 28 á móti 22 sem gera líka 56 prósent.Flestar reyndar sendingar liða inn í teig í 5. umferð Pepsi Max deildar karla:(Tölur frá Instat) 77 - Stjarnan 43 - Valur og Fylkir 40 - KR 32 - ÍA 30 - Breiðablik og ÍBV 29 - Grindavík 28 - KA 23 - FH 19 - Víkingur og KAFlestar reyndar sendingar leikmanna inn í teig í 5. umferð Pepsi Max deildar karla:(Tölur frá Instat) 15 - Þórarinn Ingi Valdimarsson, Stjörnunni 15 - Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 14 - Heiðar Ægisson, Stjörnunni 14 - Daði Ólafsson, Fylki 10 - Óskar Örn Hauksson, KR 10 - Guðjón Pétur Lýðsson, BreiðablikiFlestar reyndar fyrirgjafir liða í 5. umferð Pepsi Max deildar karla:(Tölur frá Instat) 33 - Stjarnan 24 - Fylkir 22 - ÍBV 19 - KR, HK og Breiðablik 16 - Valur 11 - ÍA 10 - Grindavík 8 - KA 7 - FH og VíkingurFlestar reyndar fyrirgjafir leikmanna í 5. umferð Pepsi Max deildar karla:(Tölur frá Instat) 8 - Heiðar Ægisson, Stjörnunni 8 - Þórarinn Ingi Valdimarsson, Stjörnunni 8 - Daði Ólafsson, Fylki 8 - Arnar Sveinn Geirsson, Brreiðabliki 7 - Þorsteinn Már Ragnarsson, Stjörnunni
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira