Fótbolti

„Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane sést hér á verðlaunahátíðinni þar sem hann varð fyrsti Englendingurinn í aldarfjórðung til að fá Gullknöttinn í hendurnar.
Harry Kane sést hér á verðlaunahátíðinni þar sem hann varð fyrsti Englendingurinn í aldarfjórðung til að fá Gullknöttinn í hendurnar. Getty/Jeff Spicer

Harry Kane segir að honum þætti undarlegt að vera kallaður „Sir“ ef hann verður aðlaður eftir að hafa unnið Gullknöttinn.

Kane varð á mánudagskvöld fyrsti Englendingurinn síðan Michael Owen – og aðeins fimmti Englendingurinn í sögunni – til að hljóta þessi virtu verðlaun. Það var liðinn aldarfjórðungur síðan Owen vann sín verðlaun.

Margir spá því að landsliðsfyrirliði Englands verði aðlaður nú þegar hann hefur verið krýndur besti knattspyrnumaður heims. Í samtali við fréttamenn eftir sigur Bayern München á Magdeburg í þýska bikarnum á miðvikudag sagðist Kane verða „stoltur“ af því að vera aðlaður.

„Ég myndi ekki segja nei við því [að vera aðlaður], það er alveg á hreinu,“ sagði hann. „Ef það gerist verður það ótrúlegt og eitthvað sem ég verð gríðarlega stoltur af. En ég vil ekki fara fram úr sjálfum mér.“

Um möguleikann á að vera ávarpaður „Sir“ sagði Kane: „Það myndi hljóma vel, en mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir. Þannig að við höldum okkur bara við Harry í bili.“

Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, óskaði Kane til hamingju á mánudag.

„Forsætisráðherrann vill óska Harry Kane til hamingju með Gullknöttinn,“ sagði talskona Downingstrætis 10.

„Að verða fyrsti Englendingurinn til að vinna hann í 25 ár er einstakt afrek og hvílík stund að gera það hér á heimavelli.

Sjötíu árum eftir að Sir Stanley Matthews hlaut verðlaunin fyrstur manna kórónar þetta frábært tímabil og Harry heldur áfram að vera ungum leikmönnum um allt land glæsileg fyrirmynd. Forsætisráðherrann veit að öll þjóðin verður ákaflega stolt af honum.

Og vonandi verður annar titill til að fagna með Englandi áður en langt um líður.“

Aðspurð hvort forsætisráðherrann vildi sjá leikmanninn aðlaðan sagði hún: „Varðandi spurningu þína um aðalstign held ég að allir séu sammála um að Harry Kane hefur gefið enskri knattspyrnu gríðarlega mikið og þetta er mjög sérstök stund fyrir hann og landið. En eins og alltaf ætla ég ekki að grípa fram fyrir ferlið við veitingu heiðursviðurkenninga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×