„Þú ert sigurvegari ef þú klárar námið!“ Þetta segir Kolbrún Eva Viktorsdóttir fyrrum nemandi í Menntastoðum hjá Mími, þegar hún er beðin um að miðla af reynslu sinni til þeirra sem hafa augastað á náminu.

Allir eru nemendurnir sammála um að námið hafi haft jákvæð áhrif á líf þeirra, gefið þeim aukið sjálfstraust til að láta drauma sína rætast, bæði hvað áframhaldandi nám varðar og störf sem þeir hafa haft augastað á en ekki látið verða af að sækja um eða eins og Hinrik Valur Thorvaldsson orðar það: „Eftir útskriftina hjá Mími þá fann ég meira sjálfstraust.“
Þá bendir Kolbrún Eva á að áður en hún kom í Mími hafi hún verið heimavinnandi húsmóðir sem hafi látið sig dreyma um að komast í nám.
Saga þessara nemenda endurspeglar upplifun fjöldamargra fullorðinna sem sækja námsbrautir framhaldsfræðslunnar hjá Mími. Þó hver saga sé einstök þá eiga þær það sameiginlegt að lýsa sigrum þessa fólks á þeim hindrunum sem urðu á vegi þess í námi og ollu því að skólagangan varð brotakennd fram til þessa. Þeir tala allir um hversu mikilvægt það sé að fullorðnir eigi möguleika á að hefja nám að nýju, jafnvel eftir áralangt hlé frá námi og fái viðeigandi stuðning til þess.
Nemendur fá mikinn stuðning við námið enda oft stórt skref að setjast aftur á skólabekk eftir kannski langt hlé frá námi. Margir þeirra hafa jafnvel ákveðið með sjálfum sér að þeir eigi ekki erindi í bóklegt nám: „Ég hef aldrei klárað eitthvað“, segir Hinrik Valur þegar hann lýsir einmitt þessu. Mikið er því lagt upp úr persónulegri þjónustu við nemendur og náms- og starfsráðgjöf, sem er þeim endurgjaldslaus.
Menntastoðir er vottuð námsbraut sem opnar leiðina til iðnnáms, stúdentsprófs eða inn í háskólabrýr en námið má meta til allt að 50 eininga í framhaldsskóla. Námið nýtur stuðnings úr Fræðslusjóði en til hans ákvarðar Alþingi fjárframlög á fjárlögum hvers árs. Meginhlutverk sjóðsins er beinlínis að stuðla að því að í boði séu námstækifæri fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki.

Það er svo mikilvægt að þeir sem hafa upplifað brotakennda skólagöngu á yngri árum og jafnvel hætt námi fái annað tækifæri til náms þegar þeir eru sjálfir tilbúnir til þess. Þar á aldur ekki að skipta máli enda setur framhaldsfræðslan ekki önnur aldursmörk en að þeir sem hefji nám séu orðnir 18 ára. Þá þarf námið og aðstaða til námsins að taka mið af þörfum fullorðinna námsmanna sem oftar en ekki stunda námið samhliða vinnu og fjölskyldulífi.
Hvernig sem á það er litið er það samfélaginu verðmætt að hækka menntunarstig íslensku þjóðarinnar til aukinnar virkni í atvinnulífi og samfélaginu í heild. Margt hefur áunnist en við þurfum að gera enn betur til að ná yfirlýstu markmiði um að hlutfall fólks á vinnumarkaði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar verði ekki hærra en 10% árið 2020.

Opið hús hjá Mími
Þriðjudaginn 4. júní kl. 17:30 til 18:30 verður opið hús hjá Mími þar sem kennarar, náms- og starfsráðgjafar og verkefnastjórar munu kynna Menntastoðir hjá Mími og svara spurningum um námsbrautina sem hefst í haust bæði í staðnámi og fjarnámi. Við hvetjum alla áhugasama til að mæta. Þá er vert að benda á vefsíðu Mímis www.mimir.is þar sem hægt er að skrá sig í námið og/eða í náms- og starfsráðgjöf.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Mími símenntun.