Í vímuakstri með tvo unga syni sína í bílnum Atli Ísleifsson skrifar 20. maí 2019 10:11 Sýnatökur á lögreglustöð sýndu jákvæðar niðurstöður á neyslu ökumannsins á fíkniefnum og var viðkomandi því handtekinn. Vísir/Vilhelm
Lögregla á Suðurnesjum handtók um helgina mann sem ók undir áhrifum fíkniefna og var með tvo unga syni sína í bílnum. Annar drengjanna var ekki í belti. Í tilkynningu frá lögreglu segir að sýnatökur á lögreglustöð hafi sýnt jákvæðar niðurstöður á neyslu ökumannsins á fíkniefnum og var viðkomandi því handtekinn. „Aðstandendum barnanna svo og barnavernd Reykjavíkur var gert viðvart um málið. Auk þessa hefur lögregla tekið fáeina ökumenn úr umferð vegna gruns um fíkniefnaneyslu á undanförnum dögum. Þá hafa nær tuttugu ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar,“ segir í tilkynningunni.Stöðvaði kannabisræktun Þá segir að lögregla í umdæminu hafi í gærmorgun stöðvað kannabisræktun í íbúðahúsnæði. Hafi verið um rúmlega 150 kannabisplöntur að ræða. „Í húsnæðinu fannst einnig töluvert magn af landa sem verið var að brugga. Húsráðandi viðurkenndi bæði ræktunina og bruggunina og afsalaði sér plöntum, landa svo og búnaði, sem hann hafði notað við framleiðsluna, til eyðingar. Auk þessa fann lögregla umtalsvert magn af fíkniefnum í húsleit sem farið var í, að fenginni heimild, í öðru, ótengdu máli. Var fíkniefni að finna víðs vegar í íbúðarhúsnæði í umdæminu og var um að ræða meintar e – töflur, kannabisefni og amfetamín. Húsráðandi var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð.“
Lögreglumál Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira