Banaslysið á Árskógssandi: Skert meðvitund ökumanns sennilega ástæða þess að bílinn stoppaði ekki á bryggjunni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. júní 2019 13:54 Bílinn fór fram af bryggjunni hér. Búið er að hækka bryggjukantinn og setja polla fyrir frá því að slysið varð. Vísir/Tryggvi Páll
Ekki er hægt að fullyrða hvað hafi orðið til þess að bíll lenti í sjónum við höfnina á Árskógssandi í nóvember 2017 með þeim afleiðingum að pólsk fjölskylda fórst. Talið er sennilegt að ökumaður bílsins hafi verið með skerta meðvitund af óþekktum ástæðum, auk þess sem að bryggjukantur var lágur og varnarbúnaður ekki nægilegur til að koma í veg fyrir að keyrt væri út af bryggjusporðinum. Ekkert bendir til annars en að um slys hafi verið að ræða.Fjölskyldan hafði verið búsett í Hrísey til nokkurra ára en um var að ræða sambúðarfólk, 36 og 32 ára og 5 ára dóttur þeirra. Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa sem gefin var út í dag vegna slyssins segir að líklegt sé að bílnum hafi verið ekið út á bryggjuna til þess að hleypa út farþegum og til affermingar áður en lagt var í bílastæði skammt frá bryggjunni. Hríseyjarferjan Sævar gengur þaðan á milli Árskógssands og Hríseyjar.Bifreiðinni var ekið eftir bryggjunni út á enda þar sem hún fór yfir bryggjukantinn, endastakkst í sjóinn og lenti þar líklega að hluta til á toppnum. Bifreiðin réttist síðan við og flaut í stutta stund þannig að hana rak nokkuð frá bryggjunni áður en hún sökk í höfninni. Þau sem voru um borð í bílnum komust ekki út.Ógerlegt að bjarga fjölskyldunni úr bílnum Aðili á vettvangi fór í sjóinn í flotbúningi en gat ekki náð til fólksins. Aðstæður á vettvangi voru með þeim hætti að þeir sem þar voru staddir áttu að mati nefndarinnar sennilega enga möguleika á að koma fólkinu til bjargar. Hiti sjávar, dýpt þar sem bifreiðin stöðvaðist á sjávarbotni og lítið skyggni neðansjávar kröfðust björgunaraðgerðaþjálfaðra björgunarmanna með viðeigandi búnað.Ljósmynd tekin daginn eftir slysið. Rauðu örvarnar sýna akstursleið ökumanns á bryggjunni.Mynd/RNSAKafarar komu á vettvang um klukkustund eftir að bifreiðin fór í sjóinn og náðu ökumanni og farþegum út úr bifreiðinni. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og voru þau öll úrskurðuð látin á sjúkrahúsi. Vitni á staðnum lýstu því að bifreiðinni hefði verið ekið án áberandi hraðabreytinga beint út bryggjuna. Ekki hafi kviknað á hemlaljósunum áður en bifreiðin fór fram af bryggjunni. Hemlaför voru ekki greinanleg eftir bifreiðina. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að ökumaður bifreiðarinnar hafði verið heilsuhraustur og engar upplýsingar sé að finna í heilsufarssögu hans eða niðurstöðum rannsókna í kjölfar slyssins sem geti skýrt orsakir slyssins. „Þrátt fyrir að ekki hafi komið fram afgerandi merki sem sýndu fram á meðvitundarleysi eða veikindi sem gætu hafa orsakað slysið útilokar það ekki skyndileg veikindi hjá ökumanni þegar slysið varð að mati sérfróðra. Samkvæmt sérfræðingi í réttarmeinalæknisfræði geta annars heilbrigðir einstaklingar fengið flogaköst eða önnur skyndileg veikindi án þess að þau skilji eftir sig ummerki sem hægt er að greina í krufningu,“ segir í skýrslunni. Er það mat nefndarinnar að rekja megi slysið til þess að ökumaðurinn stöðvaði ekki bifreiðina, sennilega vegna þess að hann var með skerta meðvitund af óþekktum orsökum. Auk þess var bryggjukantur lágur og varnarbúnaður ekki nægilegur til að koma í veg fyrir að keyrt væri út af bryggjusporðinum.Bíllinn fannst á um fjögurra metra dýpi í höfninni.Vísir/Tryggvi Páll.Skoða þurfi hvort takmarka eigi umferð um ferjuhafnir Í skýrslu nefndarinnar segir að bryggjukanturinn þar sem bifreiðin fór út af hafi verið um fimmtán sentimetra hár. Engar kröfur voru um hæð á bryggjuköntum þegar bryggjan var byggð árið 1987 en núgildandi reglugerð gerir ráð fyrir að hæð á bryggjuköntum sé 20 sentimetrar.Fjórir bryggjupollar voru á bryggjuendanum þar sem bifreiðin fór út af bryggjunni en bifreiðin komst með auðveldum hætti á milli tveggja þeirra. Eftir slysið sendi nefndin Dalvíkurbyggð bréf þar sem óskað var eftir að úrbætur yrðu gerðar á hafnarkantinum.Brugðist var við og settir upp steyptir pollar við bryggjusporðinn. Nýlega lét hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar hækka bryggjukantinn upp í 22 sentimetra og kanturinn í dag því umfram kröfur í reglugerð auk þess sem steyptir pollar verða áfram við bryggjusporðinn.Nefndin beinir því til hafnaryfirvalda á Íslandi að framkvæma athugun á því hvort gera skuli frekari ráðstafanir til að tryggja öryggi vegfarenda. Telur nefndin rétt að gerðar verði auknar kröfur til ferjuhafna til að tryggja öryggi vegfarenda vegna umferðar sem fer um slíkar hafnir. Ekki sé sjálfgefið að heimila frjálsan akstur bifreiða að ferjum. Skipuleggja þurfi umferð bifreiða við bryggjur með öruggum hætti og flutning farþega og farangurs að ferjum þegar það á við.
Dalvíkurbyggð Hrísey Samgönguslys Tengdar fréttir Öryggismál hafna verða tekin til endurskoðunar í kjölfar banaslyss á Árskógssandi Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að taka eigi fastar á öryggismálum við hafnir landsins. 8. nóvember 2017 18:00 Þrír létust er bíll fór í höfnina á Árskógssandi Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra 3. nóvember 2017 22:42 Bílnum ekið á eðlilegum hraða eftir bryggjunni Bíllinn stoppaði aldrei áður en hann fór fram af bryggjunni. 6. nóvember 2017 11:08 Fólkið sem lést var búsett í Hrísey Foreldrar og ungt barn þeirra fórust í slysi á Árskógssandi í gær þegar bíll þeirra fór fram af hafnarbakkanum og lenti í sjónum. 4. nóvember 2017 18:45 Fjölskyldan sem fórst í banaslysinu við Árskógssand var frá Póllandi Foreldrarnir voru 36 og 32 ára og dóttir þeirra fimm ára gömul. 6. nóvember 2017 15:13 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Sjá meira
Öryggismál hafna verða tekin til endurskoðunar í kjölfar banaslyss á Árskógssandi Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að taka eigi fastar á öryggismálum við hafnir landsins. 8. nóvember 2017 18:00
Þrír létust er bíll fór í höfnina á Árskógssandi Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra 3. nóvember 2017 22:42
Bílnum ekið á eðlilegum hraða eftir bryggjunni Bíllinn stoppaði aldrei áður en hann fór fram af bryggjunni. 6. nóvember 2017 11:08
Fólkið sem lést var búsett í Hrísey Foreldrar og ungt barn þeirra fórust í slysi á Árskógssandi í gær þegar bíll þeirra fór fram af hafnarbakkanum og lenti í sjónum. 4. nóvember 2017 18:45
Fjölskyldan sem fórst í banaslysinu við Árskógssand var frá Póllandi Foreldrarnir voru 36 og 32 ára og dóttir þeirra fimm ára gömul. 6. nóvember 2017 15:13