Samgönguslys

Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð
Ökumaður bifhjóls sem lést af völdum áverka sem hann hlaut eftir að hafa kastast af hjólinu á Heiðmerkurvegi í mars 2024 var ekki með ökuréttindi fyrir bifhjólinu. Þá átti hjólið ekki að vera í umferð þar sem skráningarnúmer þess hafði verið innlagt hjá skoðunarstofu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa áréttar að mikilvægt sé að ökumenn þarfnist þjálfunar við til að öðlast ökuréttindi.

Bíll valt eftir aftanákeyrslu
Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir aftanákeyrslu sem olli því að bíll valt á Reykjanesbraut í morgun.

Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“
Ekki stendur til að bæta fallvarnir vegna grjóthruns við Holtshnúp þar sem varð banaslys í mars á þessu ári. Ráðherra segir fjármagni forgangsraðað í önnur verkefni. Það hafi komið til greina að setja upp varnir við veginn en það ekki enn komist til framkvæmdar. Íbúi við veginn segir stjórnvöld verða að forgangsraða. Það sé óásættanlegt að ekki séu varnir við veginn.

Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg
Átta eru sagðir slasaðir, þar af einn alvarlega, eftir að sporvagni var ekið á matarvagn í miðborg Gautaborgar í Svíþjóð í nótt. Vitni segja að sporvagninn hafi verið á óvenjumikilli ferð þegar slysið varð.

Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni
Harður árekstur varð á horni Hverfisgötu og Klapparstígs þar sem bíll keyrði í hliðina á strætisvagni. Slökkviliðið er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum og segir um minniháttar meiðsli að ræða. Einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku.

Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss
Það tók viðbragðsaðila 44 mínútur að mæta á vettvang banaslyss sem varð við Skaftafell í janúar 2024, þegar tveimur bílum var ekið á hvor annan úr sitthvorri áttinni. Afar hált var á veginum sem varð til þess að annar bílstjórinn missti stjórn á ökutækinu, sem rann þá yfir á hinn vegarhelminginn.

Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár
Bandarísk kona, sem sofnaði undir stýri og olli alvarlegu umferðarslysi í Borgarfirði árið 2023, var dæmd í þrjátíu daga fangelsi auk þess að vera svipt ökuréttidum í sex mánuði í Héraðsdómi Vesturlands. Var það mat dómara að konan hefði gerst sek um stórkostlegt gáleysi við akstur bifreiðarinnar.

Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki
Ráðherra flugmála á Indlandi segir að flugriti farþegaþotunnar sem fórst í Ahmedabad í gær sé fundinn. Enn liggur ekki fyrir hversu margir létust á jörðu niðri þegar þotan brotlenti á íbúðabyggð.

Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp
Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínversk ferðaskrifstofa eigi ekki rétt á bótum úr hendi TM vegna banaslyss sem varð árið 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt aðstandendum þeirra tveggja sem létust bætur og taldi sig því hafa eignast kröfu þeirra á hendur TM. Landsréttur hélt nú ekki.

Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba
Indversk flugmálayfirvöld rannsaka nú tildrög og aðstæður við flugslys í Ahmedabad á Indlandi í gær. Flugslysið er eitt það mannskæðasta í flugsögu Indlands en allir farþegar vélarinnar nema einn, sem var á leið til London, létust. Vélin brotlenti um fimm mínútum eftir flugtak í íbúðarhverfi í Ahmedabad á hóteli fyrir lækna.

Umferðarslys austan Selfoss
Tveggja bíla árekstur varð við Þingborg austan Selfoss á fjórða tímanum í dag. Bílarnir eru óökuhæfir og verða dregnir af vettvangi. Slys á fólki eru ekki talin alvarleg. Búið er að opna fyrir umferð um veginn.

Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð
Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á ofsahraða, lenti á afleggjara, kastaðist yfir hann og stöðvaðist utan vegar eftir rúma fimmtíu metra. Ökumaður og farþegi létust af völdum fjöláverka en samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi var bíllinn á 201 kílómetra hraða þegar slysið varð.

Tveir sjúkrabílar kallaðir út vegna bílslyss við Mjódd
Tveir sjúkrabílar eru á vettvangi á gatnamótum Stekkjarbakka og Breiðholtsbrautar eftir að tveir bílar skullu saman.

Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss
Meginorsök banaslyss sem varð á Suðurlandsvegi, skammt vestan Péturseyjar, í janúar í fyrra var að ökumaður jeppa gætti ekki að umferð fyrir framan sig. Hann ók aftan á dráttarvél á áttatíu kílómetra hraða. Aðrar orsakir slyssins voru að ökumaðurinn var undir áhrifum slævandi lyfja, í lækningalegum skammti þó, og að sætisbak dráttarvélarinnar var aðeins 35 sentimetra hátt.

Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi
Árekstur varð á Vesturlandsvegi á fjórða tímanum í dag. Umferð um veginn í báðar áttir var lokað um tíma en opnað hefur verið fyrir umferð í suðurátt. Bílaröðin teygir sig marga kílómetra í suður. Enginn er alvarlega slasaður.

Barn fórst í Hvítá í gær
Banaslys varð í Hvítá í Hrunamannahreppi í gær þegar dráttarvél rann fram af háum bakka og hafnaði ofan í ánni. Ökumaðurinn var tíu ára gamall drengur og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá
Enn stendur yfir vinna á vettvangi við að ná upp dráttarvélinni sem hafnaði í Hvítá í gærkvöldi. Um alvarlegt slys var að ræða en einn var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu vegna slyssins.

Flugmaðurinn hafi verið mjög heppinn
Meðlimur í Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík segist hafa orðið verulega skelkaður þegar hann sá litla flugvél nálgast Suðurlandsveg óðfluga í gærkvöldi. Hann segir flugmanninn hafa verið í góðu skapi og hund hans jafnvel hressari.

Lýstu yfir óvissustigi vegna sömu flugvélar
Flugvélin sem lent var á Suðurlandsvegi í gærkvöldi er sú sama og samband rofnaði við þegar verið var að fljúga henni frá Grænlandi í gær. Landhelgisgæslan lýsti yfir óvissustigi vegna flugvélarinnar eftir að flugmaður hennar hafði ekki samband við flugumferðarstjórn á tilteknum tíma, svaraði ekki kalli og flugvélin sást ekki á ratsjám.

Skipstjórinn svarar fyrir sig
Fyrrverandi skipstjóri á Huginn VE55 sem missti akkeri sem olli skemmdum á neysluvatnslögn í Vestmannaeyjum fyrir hálfu öðru ári segir mikil vonbrigði hvernig stjórnendur og eigendur Vinnslustöðvarinnar hafi komið fram eftir atvikið. Útgerðin sverti starfsmenn sína og dragi úr eigin ábyrgð á slysinu.

Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu á Reykjanesbraut
Bíll valt á Reykjanesbraut í átt til Keflavíkur og voru tveir um borð. Þau voru flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar en hvorugur er alvarlega slasaður.

Slæmur frágangur akkerisins olli slysinu
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur ástæðu þess að akkeri Hugins VE festist í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar, með þeim afleiðingum að vatnslögn til Eyja fór í sundur, hafi verið að hvorki hafi verið gengið rétt né nægjanlega vel frá akkerisbúnaði skipsins.

Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést
Íslenskur ferðamaður í Indónesíu var farþegi í bíl sem lenti í bílslysi sem varð til þess að fimm ára gamall drengur lést. Greint er frá þessu í indónesískum fjölmiðlum.

Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi
Fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur rákust saman og brotlentu skammt frá Eura í suðvesturhluta Finnlands. Þyrlurnar voru báðar á leið til finnska bæjarins Kokemäki til að taka þátt í viðburði flugklúbbs.

Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli
Bíl var ekið á vegfaranda á hlaupahjóli við gatnamót Miðhúsabrautar og Þórunnarstrætis á Akureyri rétt fyrir klukkan átta í morgun.

Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi
Flugstjóri og flugmaður tyrkneskrar farþegaþotu sem lenti í alvarlegri ókyrrð yfir Íslandi árið 2023 tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar. Sjö manns um borð slösuðust í ókyrrðinni. Viðbrögð áhafnarinnar var talin orsök atviksins en bæði Veðurstofa Íslands og Isavia fengu tilmæli um umbætur vegna þess.

Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys á brúnni fyrir ofan Fífuhvammsveg við Smáralind í Kópavogi.

„Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“
Kona ók bíl inn í garð nágranna síns og utan í hús hans í Yrsufelli í Reykjavík í morgun. Eigandi hússins var að drekka morgunkaffi þegar hann fann höggið og sá bílinn í garðinum. Konan reyndi síðan að keyra í burtu og gat engar skýringar gefið á árekstrinum.

Strætó og jeppi skullu saman á Reykjanesbraut
Strætisvagn og jeppabifreið lentu saman á Reykjanesbraut í gær. Tiago Miguel náði myndbandi af atvikinu og birti það á Facebook síðunni íslensk bílamyndbönd.

Tveir enn á gjörgæslu og samfélagið harmi slegið
Tveir drengjanna sem slösuðust í alvarlegu bílslysi í grennd við Hofsós á föstudagskvöld eru enn á gjörgæslu. Samfélagið í Skagafirði er harmi slegið vegna málsins að sögn setts skólameistara, en boðað hefur verið til samverustundar í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki á morgun.