Krónan ódýrari en Bónus þökk sé Cheerios Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júní 2019 15:50 Verðsamanburður samkvæmt könnun ASÍ frá 3. júní. ASÍ
10-11 er dýrasta verslunin samkvæmt verðkönnun á matvöru sem verðlagseftirlit ASÍ gerði 3. júní sl. Samkaup strax og Krambúðin eru næst dýrastar af þeim ellefu verslunum sem verð var kannað hjá. Super 1 skipar sér í hóp lágvöruverðsverslana með verð sem eru í mörgum tilfellum svipuð og í Bónus og Krónunni en hærri í ákveðnum tilvikum. Í 62 tilfellum af 106 var yfir 81% munur á hæsta og lægsta verði en í 45 af 105 tilfellum var yfir 100% verðmunur. Hæsta verðið var oftast í 10-11 en það lægsta oftast í Bónus. Munur á verði í Bónus á Krónunni er lítill sem enginn ef frá er talinn munur á verði á Cheerios þann 3. júní. Eins og sjá má á samanburðinum að ofan er það munurinn á verði á Cheerios, 337 krónur, sem gera körfuna hjá Krónunni 323 krónum ódýrari. Iceland og Hagkaup eru dýrustu verslanirnar að minni hverfisverslunum undanskildum (10-11, Samkaup strax og Krambúðinni) en Iceland er aðeins oftar með hærri verð en Hagkaup í þessari könnun.2 lítra kók á 649 kr Lítri af nýmjólk eða léttmjólk frá MS á 299 kr., French Roast kaffi frá Te og Kaffi á 1.799 kr., Lífskorn brauð frá Myllunni á 729 kr., kassi af Hrauni (200 gr.) á 599 kr., 649 kr. fyrir tveggja lítra Coca Cola og 1.299 kr. fyrir 10 stk pylsupakka frá SS eru dæmi um verð í 10-11 sem var oftast með hæsta verðið í þessari könnun. Til samanburðar kostar lítri af nýmjólk 169 kr. í Hagkaupum og Iceland þar sem hún er næst dýrust og 152 kr. í Bónus þar sem mjólkin er ódýrust. French Roast kaffið kostar 1.379 kr. í Krambúðinni þar sem það er næst dýrast og 975 kr. í Bónus þar sem það er ódýrast. Lífskorn brauð er ódýrast í Bónus á 398 kr. en næst dýrast í Samkaup strax á 549 kr. Kassi af Hrauni er næst dýrastur í Samkaupum strax á 399 kr. en ódýrastur í Bónus á 225 kr. Þá kosta tveir lítrar af Coca cola 229 kr. í Nettó þar sem verðið er lægst, 429 kr. í Samkaupum strax sem er næst hæsta verðið en 649 kr. í 10-11 þar sem verðið er hæst. SS pylsur, 10 stk. Eru ódýrastar í Bónus 787 kr., næst dýrastar í Samkaupum-strax 989 kr. en lang dýrastar í 10-11 eða 1.299 kr.Super 1 kemur sér fyrir í flokki lágvöruverðsverslana Verðlagið í 10-11 er langt hæst í könnuninni eins og áður segir og munar töluverðu á þeirri verslun og Samkaup strax sem er næst hæst. Verðlagið í Samkaup strax er þó einnig gegnum gangandi mikið hærra en í meirihluta verslananna í könnuninni þrátt fyrir að vera töluvert lægra en í 10-11. Þessar þrjár búðir, 10-11, Samkaup strax og Krambúðin skera sig frá restinni af verslununum og eru almennt minni og með minna vöruúrval. Verðlag í verslunum Iceland svipar til Krambúðarinnar og sama má segja um Hagkaup. Töluverður vegur er síðan frá verðlagi í verslunum Hagkaups og Iceland að verðlagi í hinum verslununum, Kjörbúðinni, Fjarðarkaupum, Super 1, Nettó, Krónunni og Bónus. Bónus og Krónan eru að jafnaði nálægt hvor annarri í verðlagi og eru yfirleitt ódýrustu verslanirnar en þar á eftir koma Nettó og Super-1. Þar á eftir koma Fjarðarkaup og Kjörbúðin sem eru þá að jafnaði aðeins dýrari en ódýrustu lágvöruverðsverslanirnar en ódýrari en Hagkaup og Iceland.Um könnunina Í könnuninni var hilluverð á 106 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina. Könnunin var framkvæmd mánudaginn 3. júní 2019 á sama tíma í öllum verslunum en þær eru: Bónus Skeifunni, Nettó Mjódd, Super 1 Hallveigarstíg, Krónunni Lindum, Hagkaup í Skeifunni, Iceland í Glæsibæ, Fjarðarkaupum, Costco og Kjörbúðinni Garði. Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekkert mat er lagt á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana.
Neytendur Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Viðskipti erlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Sjá meira