Ríkjandi heimsmeistarar Bandaríkjanna þurftu tvær vítaspyrnur til þess að slá Spánverja úr keppni á HM kvenna í fótbolta.
Strax á fimmtu mínútu leiksins braut Mapi Leon af sér innan vítateigs þegar hún tók Tobin Heath niður. Vítaspyrna dæmd, Megan Rapinoe fór á punktinn og skoraði.
Spánverjar jöfnuðu hins vegar leikinn á níundu mínútu. Alyssa Naeher átti sendingu út úr marki sínu, stutta á Becky Sauerbrunn. Sauerbrunn var ekki tilbúin í að taka á móti boltanum, Lucia Garcia náði að hirða hann af henni og koma boltanum á Jenni Hermoso sem skoraði.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og allt jafnt. Á 71. mínútu fengu Bandaríkin aðra vítaspyrnu þegar Rose Lavelle fór niður eftir snertingu frá Virginia Torrecilla.
Myndbandsdómarinn skoðaði atvikið og fékk Katalin Kulcsar, dómara leiksins, til að fara sjálfa að skjánum á hliðarlínunni og skoða það og eftir langa, langa umhugsun stóð Kulcsar við ákvörðuinina. Rapinoe fór aftur á vítapunktinn og skoraði aftur.
Þær bandarísku héldu út og fögnuðu 2-1 sigri. Þær fara áfram í 8-liða úrslitin en Spánverjar eru á heimleið.
Tvö víti björguðu heimsmeisturunum
