Júlíspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Það sem þú leitar að er beint fyrir framan nefið á þér Sigga Kling skrifar 5. júlí 2019 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, þú býrð yfir miklum hæfileikum til að vernda og passa þá sem þú elskar, ert með sterka nærveru og ert kraftmikil persóna, en þú hefur stundum þá tilfinningu að þú sért hræðilega einmana og það kemur fyrir þú kafar allt of djúpt inn í sálina, en þegar þú skoðar betur muntu sjá heilan herskara af fólki sem elskar þig, dáir og virðir. Þú hefur yfirbragð hins góðviljaða stjórnanda og eignast alloft vini meðal þeirra sem minna mega sín og hefur almennt mikil áhrif á fólk. Ástin er þér stundum eins og sprengjusvæði því þá missirðu stjórnina svo þú skalt fara afar varlega, og ef þú ert að velja þér maka skaltu velja þann sem gefur öryggi og festu. Þú ert að fara inn á gott tímabil því talan fimm er yfir þér sem veitir þér visst kæruleysi, mikla forvitni og óvænt ferðalög, ný kynni við fólk af öðru þjóðerni og þú munt sjá lífið í öllum regnbogans litum. Þú leysir upp gömul mál, gengur sterkur til verks og nærð tökum á að líða svo miklu, miklu betur. Breytingar í fjölskyldu þinni munu gefa þér meiri ást og tilgang en þú hefur upplifað síðustu misserin og það er svo nálægt þér það sem þú leitar að, þú ert að horfa allt of langt í framtíðina, svolítið á undan sálinni en það sem þú leitar að er beint fyrir framan nefið á þér, svo um leið og þú sérð það breytist allt. Það er ekkert jafn fagurt og þegar þér líður vel og þú átt eftir að finna margar góðar og nýtar leiðir til þess að skjóta þér á flug. Í framhaldi af þessu muntu finna að þú ert mjög næmur fyrir lífinu og öllum hliðum þess, og þarft ekkert að óttast því það er uppbygging í sambandi við vinnu, skóla eða eða það sem þú ert að fara að taka þér fyrir hendur og breytingar eru jákvæðar því þeim fylgir styrkur og heppni og þú munt verða alveg í essinu þínu. Knús og kveðja, þín Sigga KlingBjörk, Karl, Þorgerður, Leonardo, Þórdís, Magnús.Vísir/Getty/FBLSporðdreki 23. október - 21. nóvemberBirkir Már Sævarsson, landsliðsmaður í fótbolta, 11. nóvember Helga Braga Jónsdóttir, leikkona, 5. nóvember Emmsjé Gauti, rappari, 17. nóvember Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður, 21. nóvember Karl Bretaprins, 14. nóvember Hillary Clinton, stjórnmálamaður, 26. október Leonardo DiCaprio, leikari, 11. nóvember Magnús Scheving, frumkvöðull, 10. nóvember Hörður Ágústsson Macland snillingur, 24. október Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður Viðreisnar, 1. nóvember Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, 4. október Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Dómsmálaráðherra, Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, 4. nóvember Jón Jónsson, tónlistarmaður, 30. október Króli, tónlistarmaður, 2. nóvember Bergur Ebbi, grínisti, 2. nóvember
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira