Áfrýjunardómstóllinn kvað ný gögn í málinu, sem benda til hlutdrægni lögreglumannsins sem handtók Meek Mill á sínum tíma, vera þess eðlis að líklegt væri að Meek Mill yrði sýknaður ef réttað væri yfir honum að nýju.
Ákæruvaldið í borginni hefur gefið grænt ljós á að réttað verði yfir Meek Mill, sem heitir réttu nafni Robert Rihmeek Williams, að nýju og hafa staðfest að ekkert traust sé borið til lögreglumannsins sem um ræðir en sá er hættur í lögreglunni en hann var eina vitnið í málinu árið 2008.
Lögreglumaðurinn sem bar vitni gegn Meek Mill, Reginald Graham hætti störfum eftir að upp komst að hann hafði stolið fé og logið til um það.
Graham sagði við réttarhöldin árið 2008 að hinn þá 19 ára gamli Meek Mill hafi otað skotvopni að sér. Meek Mill hefur ávallt neitað þeim ásökunum og þá hefur starfsfélagi Graham viðurkennt að Graham hafi logið og að Meek Mill hafi einfaldlega verið að reyna að losa sig við skotvopnið.