Ætlar ekki að þiggja aðstoð G7-ríkja fyrr en Macron biðst afsökunar Birgir Olgeirsson skrifar 27. ágúst 2019 16:35 Bolsonaro segist hafa móðgast þegar Emmanuel Macron kallaði hann lygara. Vísir/EPA
Forseti Brasilíu, Jair Bolsonaro, ætlar ekki að þiggja aðstoð G7-ríkjanna við að ráða niðurlögum skógarelda í Amazon-frumskóginum fyrr en hann fær afsökunarbeiðni frá forseta Frakklands. Bolsonaro segist hafa móðgast þegar Emmanuel Macron kallaði hann lygara. Macron hefur sakað Bolsonaro um lygar þegar Bolsonaro talar um að vilja berjast gegn loftslagsbreytingum. Macron tilkynnti eftir fund G7-ríkjanna að stjórnvöld þeirra væru tilbúin að reiða fram 22 milljónir dollara í hjálparstarf til Brasilíu. Gervitunglamyndir hafa sýnt að fjöldi skógarelda í Brasilíu hefur aldrei verið meiri, flestir af þeim eru í Amazon-regnskóginum. Bolsonaro hafði áður látið hafa eftir sér að Brasilía þyrfti ekki á aðstoð að halda og sakaði erlend ríki um á seilast eftir yfirráðum yfir Amazon-frumskóginum. Macron sagði í síðustu viku að Bolsonaro hefði logið að honum á G20-leiðtogafundinum í Osaka í Japan í júní síðastliðnum með því að virða ekki alþjóðlegar skuldbindingar í loftslagsmálum. Sagði Macron að Frakkar myndu ekki staðfesta fríverslunarsamning við ríki Suður-Ameríku nema Brasilía myndi gera meira til að ráða niðurlögum elda í Amazon-regnskóginum.
Brasilía Frakkland Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira